Fara í efni
Íþróttir

Þór/KA sækir Val heim í Bestu deild kvenna

Karen María Sigurgeirsdóttir, Margrét Árnadóttir og Amalía Árnadóttir í leik með Þór/KA í sumar. Þær verða væntanlega allar í eldlínunni gegn Val í dag. Mynd: Ármann Hinrik.

Keppni í Bestu deild kvenna í knattspyrnu er að hefjast aftur eftir landsleikjahlé. Þór/KA sækir Val heim að Hlíðarenda í dag, en Þór/KA á enn eftir að ná sínum fyrsta sigri í Bestu deildinni þetta árið. Bæði liðin hafa reyndar átt betri daga en þá rúmu 50 daga sem liðnir eru frá því að mótið hófst.

Að loknum sjö umferðum er Þór/KA í neðsta sæti deildarinnar með tvö stig, en Valur er tveimur sætum ofar með sjö stig.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 8. umferð
    N1 völlurinn að Hlíðarenda kl. 16:15
    Valur - Þór/KA

Valur vann báðar viðureignir liðanna í fyrra, fyrst 3-0 á sínum heimavelli í apríl og 2-1 á Akureyri í ágúst.