Fara í efni
Íþróttir

Þór/KA heimsækir Keflavík í bikarnum

Sandra María Jessen skorar mark gegn Keflavík fyrr í mánuðinum þegar liðin mættust í deildinni. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Þór/KA heimsækir Keflavík í dag í leik sem er hluti af 16 liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna.

Þór/KA liðið hefur verið að spila vel í sumar og er sem stendur í fjórða sæti Bestu deildar kvenna með níu stig. Í seinustu umferð tapaði liðið 2:1 á útivelli gegn Þrótti Reykjavík. Keflavíkurliðið er í sjötta sæti deildarinnar með sjö stig. Liðið vann góðan sigur á Selfossi í seinustu umferð. Það má því búast við hörku leik þar sem sæti í 8 liða úrslitum er í boði.

Þessi lið mættust fyrr í mánuðinum en þá í deildarkeppninni. Þar hafði Keflavík 2:1 sigur þar sem Þór/KA liðið spilaði undir getu. Akureyri.net fjallaði um þann leik og má skoða umfjöllun um leikinn HÉR

Leikurinn fer fram kl 16:00 og er sýndur í beinni útsendingu á RÚV.