Fara í efni
Íþróttir

Þór/KA fær toppliðið í heimsókn í kvöld

Agnes Birta Stefánsdóttir í leik með Þór/KA. Mynd: Ármann Hinrik.

Allir leikir fimmtu umferðar Bestu deildar kvenna í knattspyrnu verða spilaðir í kvöld. Þór/KA fær Íslandsmeistarana og núverandi topplið deildarinnar, Breiðablik, í heimsókn. Flautað verður til leiks kl. 18:30.

Þór/KA hefur gengið brösuglega að safna stigum í upphafi leiktíðarinnar, en liðið er án sigurs í fyrstu fjórum umferðunum, auk þess að hafa fallið úr bikarkeppninni í 16 liða úrslitunum á föstudag. Andstæðingarnir í dag féllu reyndar einnig úr bikarkeppninni í 16 liða úrslitunum eftir tap fyrir Þrótti. Bæði lið koma því með tap á bakinu úr síðasta leik sínum.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu,
    5. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn - gervigras á Ásnum) kl. 18:30
    Þór/KA - Breiðablik

Breiðablik er á toppi Bestu deildarinnar að loknum fjórum umferðum. Kópavogsliðið hefur unnið alla leiki sína í deildinni til þessa. Þór/KA er hins vegar við hinn enda deildarinnar, situr í 9. sætinu með tvö stig úr fyrstu fjórum leikjunum. Breiðablik vann Val 3-2 í fjórðu umferð deildarinnar, en Þór/KA tapaði 2-0 fyrir ÍBV í Eyjum.

Leikir 5. umferðar

Kl. 18:00

  • FH-ÍBV

Kl. 18:30

  • Þór/KA - Breiðablik 

Kl. 19:15

  • Valur - Fram 
  • Grindavík/Njarðvík - Stjarnan 
  • Víkingur - Þróttur