Þór er grasrótarfélag KSÍ árið 2025
Á ársþingi Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) sem haldið verður á Egilsstöðum í dag, laugardag, verða að venju afhentar viðurkenningar af ýmsu tagi. Þar á meðal fær Þór afhenta viðurkenningu sem grasrótarfélag KSÍ árið 2025.
Grasrótarverðlaunum KSÍ er skipt upp í þrjá flokka: Grasrótarverkefni ársins, Grasrótarfélag ársins og Grasrótarpersóna ársins.
Viðurkenninguna hlýtur Þór vegna Pollamótsins, sem félagið hefur staðið fyrir árlega frá 1988. Á Pollamótinu koma saman „gamlar“ fótboltakempur og leika listir sínar yfir eina helgi í júlímánuði. Aldurstakmarkið er reyndar ekki mjög hátt – 28 ár hjá körlum og 20 ár hjá konum – en skipt er í fjóra aldursflokka hjá körlum og þrjá kvennamegin.
Keppendum hefur fjölgað mjög undanfarin ár og eru nú 650-750 talsins. Mikil aukning hefur verið í þátttöku kvenna síðustu ár og af 650 keppendum í fyrra voru 250 konur.
„Alvöru lið eru með lúðrasveit í upphitun“

Lið á Pollamótinu bregða gjarnan á leik. Eitt þeirra er akureyrski hópurinn Ginola en hann hefur einnig gert góðverk, safnaði til dæmis rúmlega einni milljón króna fyrir MND samtökin eitt árið. Þessi mynd var tekin 2023 þegar Ginola fékk Lúðrasveit Akureyrar til að mæta á svæðið og einn Ginola-félaginn lét orðin ofar myndarinnar falla. Hljómsveitin lék nokkur fjörug lög á meðan liðsmenn hituðu upp fyrir leik eftir hádegið, sagði í umfjöllun akureyri.net, og bætt var við: „Engum sögum fer af úrslitum en gárungarnir töldu næsta víst, áður en athöfnin hófst, að hljómsveitin myndi leika betur en liðið!“