Þjóðaratkvæðagreiðsla – allar helstu upplýsingar
Í dag fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort Ísland á að taka aftur upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Spurt er: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Kjósendur svara einfaldlega annaðhvort með því að setja X við já eða nei. Nýmæli í þessari kosningu er að Akureyrarbær tekur þátt í prófunum á rafrænni kjörskrá.
Kosið á þremur stöðum
Akureyrarkaupstað er skipt í 12 kjördeildir, þar af eru tíu á Akureyri, ein í Grímsey og ein í Hrísey. Skipting í kjördeildir fer eftir búsetu samkvæmt skráðu lögheimili hjá Þjóðskrá þann 22. júlí 2026. Kjósendur eru beðnir um að kynna sér í hvaða kjördeild þeim ber að kjósa. Kjörskrá er hægt að skoða á vef Þjóðskrár - sjá hér.
Kjörstaðir í Akureyrarkaupstað:
- Verkmenntaskólinn á Akureyri - kjörfundur kl. 9-22 - kjördeildir 1-10
- Hríseyjarskóli - kjörfundur hefst kl. 9, opið að lágmarki til 17:30 nema allir á kjörskrá hafi kosið fyrir þann tíma.
- Félagsheimilið Múlí í Grímsey - kjörfundur hefst kl. 9, opið að lágmarki til 17:30 nema allir á kjörskrá hafi kosið fyrir þann tíma.
Athygli kjósenda í Hrísey og Grímsey er vakin á að kjörstað kann að verða lokað fyrr að uppfylltum skilyrðum 91. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Þeir eru því hvattir til að mæta á kjörstað fyrir kl. 17.00. Kjörstaðir í Hrísey og Grímsey verða þó að lágmarki opnir til kl. 17.30 nema allir á kjörskrá hafi kosið fyrir þann tíma.
Nokkur atriði til glöggvunar:
- Kjósendum ber að sýna persónuskilríki á kjörfundi; nafnskírteini, ökuskírteini eða vegabréf. Rafræn skilríki eru ekki tekin gild nema þeim sé framvísað í gegnum island.is appið.
- Á kjördag hefur yfirkjörstjórn aðsetur á bókasafni VMA.
- Netfang kjörstjórnar er kjorstjorn@akureyri.is.
- Yfirkjörstjórn skipa Helga Eymundsdóttir, Júlí Ósk Antonsdóttir og Rúnar Sigurpálsson.
Akureyrarbær tekur þátt í tilraunaverkefni
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni í dag tekur Akureyrarbær þátt í prófunum á rafrænni kjörskrá. Í tveimur kjördeildum í Verkmenntaskólanumá Akureyri, kjördeildum 1 og 3, verður bæði notast við prentaða og rafræna kjörskrá og munu kjósendur þar sjá starfsmann við tölvu auk þeirra sem sitja með hefðbundnum hætti við með blöð og skriffæri. Nánari upplýsingar um prófun á rafrænni kjörskrá má finna á vef Þjóðskrár - sjá hér.