Fara í efni
Menning

Þekkir þú ungt tónskáld fyrir Upptaktinn?

Frá tónleikum Upptaktsins í fyrra. Atvinnutónlistarmenn aðstoða ungu tónskáldin við að útsetja og flytja lögin þeirra á stórtónleikum í Hamraborg í Hofi. Mynd: Þorgeir Baldursson

Leynist ungt og upprennandi tónskáld á heimilinu þínu? Upptakturinn er árlegt samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Hörpu, en þar er áhersla lögð á að hvetja börn og ungmenni til að semja tónlist og styðja þau í fullvinnslu hugmyndar. Ungmennin sem komast áfram vinna að útsetningum undir leiðsögn reyndra tónlistarmanna. Frestur til þess að senda inn hugmyndir er til og með 19. febrúar.

Að þessu ferli loknu verða til ný tónverk sem flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum á opnum tónleikum 19. apríl kl 17. í Hofi. Tónleikarnir eru varðveittir með upptöku í hljóð og mynd sem sýnd verður á RÚV.

Hvað er Upptakturinn?

Ungmenni í 5.-10. bekk grunnskóla senda inn lag eða hugmynd að lagi á upptakturinn@mak.is. Hugmyndin þarf ekki að vera fullunnin.
Ungmennin sem komast áfram, vinna að útsetningum hugmynda sinna undir leiðsögn reyndra tónlistarmanna í vinnusmiðjum.

Að þessu ferli loknu verða til ný tónverk sem flutt verða á tónleikum af atvinnuhljóðfæraleikurum og varðveitt með upptöku á rúv.is. Höfundar tónverkanna sitja út í sal og njóta þess að horfa á atvinnuhljóðfæraleikara spila verk þeirra.

Tónlistarstjóri er Greta Salóme, fiðluleikari, söngkona og tónskáld.

Hlekkir: