Fara í efni
Menning

ÞAU, norðlensk skáld og frumsamin lög

Hljómsveitin ÞAU stígur á svið í Hofi um næstu helgi og flytur frumsamda tónlist við ljóð norðlenskra og vestfirskra skálda! Með tónleikunum fagna ÞAU útgáfu annarrar plötu sinnar, ÞAU taka Norðurland.

„ÞAU munu flytja glæný lög þar sem ljóð skálda frá Norðurlandi lifna við. Orðsnilld Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, Huldu, Ólafar frá Hlöðum, Önnu Ágústsdóttur og fleiri skálda öðlast nýtt líf í vönduðum tónlistarflutningi með rokk, popp, jazz og blús ívafi,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að tónleikarnir eru framhald af tónleikaröðinni ÞAU taka Vestfirði „sem hlotið hefur frábærar undirtektir síðustu ár.“

Í tilkynningunni segir: „Hljómsveitina skipa Rakel Björk Björnsdóttir sem hefur getið sér gott orð leik- og söngkona, m.a. í Borgarleikhúsinu þar sem hún lék í sýningunum 9 líf, Matthildur og Room 4.1, og Garðar Borgþórsson gítar- og slagverksleikari sem hefur leikið með hljómsveitum eins og Ourlives og different Turns og jafnframt samið tónlist fyrir fjölda leiksýninga.“

ÞAU - Lifandi flutningur af laginu Abba-labba-lá