Þakklæti og virðing fyrir náttúrunni í vatnslitum

Rannveig B Hrafnkelsdóttir myndlistamaður mun opna sýningu í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík á morgun, laugardaginn 31. maí kl. 14.00. Til sýnis eru vatnslitamyndir Rannveigar, þar sem náttúran, íslenska flóran og hennar litadýrð fá að njóta sín. Sýningin ber heitið 'Þangað sem birtan ber mig' og segir Rannveig við blaðamann Akureyri.net að þar beri að líta sambland af hughrifum, þakklæti og ást á náttúrunni.
„Litagleði og kærleikur til náttúrunnar skín í gegn á þessum myndum,“ segir Rannveig. „Ég hef sérstakt dálæti á blómum og gróðri, en ég er alin upp í sveit, fædd á Vopnafirði og flutti síðar í sveitina rétt hjá Kópaskeri. Þar gekk ég um móana með pabba mínum og hann kenndi mér allt um gróðurinn, hvað allt hét. Þegar ég var um tíu ára aldurinn kunni ég svona 300 tegundir, bæði á íslensku og latínu.“ Rannveig nýtti sér svo kunnáttuna og ástina á jurtum og gróðri, en hún hefur áður starfað við að búa til náttúrulegar vörur úr íslenskum jurtum.
Plöntur og gróður eru í sérstöku dálæti. Mynd: RH
Friðaði rjúpuna hjá sjálfri sér
„Núna mála ég blómin, eftir að ég notaði þau mest í smyrsl og hóstameðul,“ segir Rannveig, en það eru ekki bara plöntur á myndunum á sýningunni. Það eru nokkrar myndir af rjúpum til dæmis, en Rannveig segist vera búin að friða þær. „Ég borðaði alltaf rjúpur í jólamatinn. En svo ákvað ég að hætta því og mála þær í staðinn.“
Opnun sýningarinnar verður kl 14.00 - 16.00 og boðið upp á létta drykki og listakonan verður á staðnum. Hér má skoða viðburðinn á Facebook.
Rjúpurnar hennar Rannveigar. Mynd: RH