Fara í efni
Menning

„Það eru mörg skref á bak við þessi verk“

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Göngutúrar Kristins G. Jóhannssonar myndlistarmanns hafa borið ríkulegan ávöxt undanfarin ár og gera enn. Fjaran og húsin í þeim elsta og að margra mati fallegasta bæjarhluta Akureyrar rötuðu á striga eftir galdra göngugarpsins með pensilinn og prýða nú margan vegginn. Fjaran er aldrei of víða; Kristinn sýndi hana í Mjólkurbúðinni í Listagilinu fyrir tveimur árum og nú gleður hann gesti á sama stað með afrakstri gönguferða með Glerá. Sýningin var opnuð fyrir viku og henni lýkur klukkan fimm síðdegis á sunnudaginn kemur; drífið ykkur því, þið sem ekki hafið litið þar við. Sjón er sannarlega sögu ríkari.

Málar það sem hann sér með augunum

Kristinn sagði akureyri.net fyrir tveimur árum að hann væri farinn að mála eins og barn á nýjan leik; málaði það sem hann sæi með augunum. Brekkurnar hafði hann oft málað en skyndilega birtust þar hús úr penslinum; Friðbjarnarhús, þar sem fyrsta templarastúka Íslands var stofnuð, var til dæmis á einni myndinni og hana kallaði húmoristinn Kristinn Hús án áfengis.

Hluti verkanna sem Kristinn G. sýnir í Mjólkurbúðinni þessa dagana.

– Við erum heppin að hafa getað varðveitt þennan elsta bæjarkjarna, sagði Kristinn fyrir tveimur árum.

– Akureyringar voru svo duglegir að kveikja í húsunum í bænum að það er til dæmis alveg merkilegt að Laxdalshús skuli vera á lífi. Það var í einum brunanum miðjum.

Sannarlega heppilegt og gott er til þess að hugsa að Gleráin haldi sig alltaf nokkurn veginn á sama stað.

Verkin á sýningunni Hlaðspretti sem nú prýða veggi Mjólkurbúðarinnar, vatnslitamyndir og olíumálverk, eru sumpart það sem Kristinn „sér með augunum“ en við hlið hverrar í fremra rýminu, þar sem olíumálverkin lýsa upp Listagilið, er önnur af sama mótívi – abstrakt mynd. Tvennur, segir hann. 

Gengur 7,2 kílómetra daglega

Kristinn gerði Fjörunni og húsunum skil á sýningunni fyrir tveimur árum eins og áður kom fram. „Ég er með vinnustofu innfrá og fer í göngutúr þar alla morgna. Seinniparts göngutúrinn er síðan með Glerá þar sem ég bý,“ segir Kristinn og þangað sækir hann yrkisefni nú. 

Það eru þá ansi margir kílómetrar á bak við þessar myndir, segir aðkomumaðurinn í Mjólkurbúðinni, sá sem þetta skrifar.

„Já, það eru býsna margir kílómetrar,“ svarar listamaðurinn og bætir um betur. Samkvæmt mælingu símans gengur Kristinn 7,2 kílómetra á degi hverjum. „Og reiknaðu nú; margfaldaðu kílómetrafjöldann með 365! Það eru mörg skref bak við þessi verk.“

Listamaðurinn á tali við einn sýningargesta opnunardaginn fyrir viku. Vatnslitamyndir hans á veggnum.

Sýningin í Mjólkurbúðinni er opin frá klukkan tvö fimm – 14 til 17 – í dag, á morgun og sunnudag. Þannig vill til að Kristinn G. Jóhannsson verður níræður rétt fyrir jól, trúi því hver sem vill og auðvitað skiptir það ekki máli í þessu samhengi heldur listin, en bar þó á góma vegna þess að salurinn var upptekinn þegar nær dregur afmælinu. „Ég verð því að halda upp á afmælið tvisvar,“ segir hann. Hlaðsprettur er auðvitað einskonar afmælisveisla.

Ólafsfjörður og Eyrin

Næsta sýning listamannsins sem ráðin er verður í Pálshúsi í Ólafsfirði. Kristinn var skólastjóri þar í bæ um 18 ára skeið, sýndi fyrstur í Pálshúsi þegar það var opnað fyrir 10 árum „og ég hef verið beðinn um að koma aftur og halda sýningu í tilefni 10 ára afmælis húsnæðisins,“ segir hann. „Þar verður að líkindum pínulítið yfirlit yfir það sem ég hef gert,“ segir Kristinn og af nógu er að taka. Liðnir eru liðlega sjö áratugir síðan hann sýndi fyrst!

Næstu göngutúrar í þágu myndlistarinnar verða að öllum líkindum um fornar slóðir. Kristinn ólst upp í Norðurgötunni og langar að gera henni skil með pensli. Hugsanlega „með augunum“ og abstrakt myndum líka. Við förum ekki út í þá sálma. Hann málaði tvö af litlu, fallegu húsunum syðst í Norðurgötunni fyrir nokkrum árum en leist ekki á blikuna þegar byggt var stórhýsi í grenndinni og sló verkefninu á frest en ætlar að gera aðra atlögu.

„Já, ætli ég gangi ekki Eyrina næst. Eftir sýninguna í Pálshúsi má Norðurgatan fara að passa sig!“