Fara í efni
Mannlíf

„Það ættu allir að halda líka jól í júlí“

Hjónin Baldvin Freyr Sigurjónson og Alfa Jóhannesdóttir eru mikið jólafólk og halda árlega jólaboð á miðju sumri. Viðburðurinn, sem þau kalla Jól í júlí, hefur vaxið jafnt og þétt frá því hann var fyrst haldinn fyrir um fimm árum.

Grillaðar pylsur, jólakökur, jólatónlist og gestir í jólapeysum eru ekki samsetning sem flestir tengja við miðjan júlí. En fyrir Ölfu Jóhannsdóttur og fjölskyldu hennar er viðburðurinn „Jól í júlí“ orðinn að fastri hefð þar sem sumar og jól mætast á skemmtilegan hátt. Júlí-jól fjölskyldunnar voru um síðustu helgi.

„Ég er algjört jólabarn og mér fannst eiginlega bara kjánalegt að hafa jól bara einu sinni á ári. Ég sannfærði því manninn minn um að við þyrftum að halda jólaboð í júlí,“ segir Alfa spurð að því hvernig þetta byrjaði allt saman fyrir fimm árum.

Byggðavegur 90 á Akureyri. Þar er jólaboð í garðinum á hverju ári í júlí. 

Ekkert jólastress

Fyrsta árið var jólaboðið lítið og haldið innandyra með hamborgarhrygg og brúnuðum kartöflum á borðum. Árið eftir var veislan flutt út í garð, gestunum fjölgaði og síðan hefur viðburðurinn stækkað með hverju ári. Fjölskyldan, sem býr efst á Byggðaveginum, samanstendur auk Ölfu af eiginmanninum Baldvini Frey Sigurjónssyni og börnum Jakobi Jóhanni og Lilju Dögun, að ógleymdum hundinum Loka. Öll taka þau þátt í jólagleðinni með því að skreyta garðinn, setja upp jólatré, og baka smákökur. Gestir mæta síðan í sparifötum eða jólapeysum í jólagleðina.

Alfa leggur áherslu á að ekkert jólastress tengist viðburðinum heldur er einfaldleikinn í fyrirrúmi. Viðburðurinn er áfengislaus, gestum er boðið upp á grillaðar pylsur, heimabakaðar jólakökur og annað jólagóðgæti á meðan jólatónlistin ómar um hverfið. „Við viljum bara að fólk komi saman og hafi gaman. Það þarf ekkert að vera flókið eða dýrt,“ segir Alfa. Börnin eru í lykilhlutverki, hoppukastali hefur verið á svæðinu, jólasveinninn kemur í heimsókn með gott í poka og hláturinn heyrist langar leiðir.

Ég bara elska þennan tíma og hvers vegna ætti maður ekki að reyna að dreifa þessari stemningu yfir árið?

Viðburðurinn er opinn vinum og vandamönnum, en gestalistinn hefur þó náð mun lengra. „Við búum til Facebook-viðburð á hverju ári og segjum öllum að það sé velkomið að taka fólk með sér. Svo berst þetta bara áfram. Það hafa jafnvel komið gestir sem heyrðu bara af jólaboðinu og ákváðu að kíkja við. Það finnst okkur bara frábært.“ Í ár telur Alfa að á bilinu 70 til 80 manns hafi mætt í jólaboðið, en þegar flest hefur verið hafa gestirnir verið um hundrað talsins.


Baldvin Freyr kominn í jólapeysu og með jólasvuntu. Garðurinn er að sjálfsögðu skreyttur í stíl við tilefnið. 

Fastar jólahefðir í desember

Þrátt fyrir að fjölskyldan haldi jól í júlí tekur Alfa skýrt fram að viðburðurinn komi alls ekki í stað hinna hefðbundnu jóla. „Nei, alls ekki. Þetta styttir bara biðina fram að jólum,“ segir hún og upplýsir um leið að fjölskyldan eigi sér nokkrar fastar jólahefðir. Fyrir jólin bjóða þau Baldvin alltaf fjölskyldu og vinum heim í möndlugraut og jólabingó. „Það eru alls konar vinningar í boði og markmiðið er bara að koma saman og skemmta sér. Baldvin er bingóstjóri, en þetta er hefð sem kemur frá ömmu hans og afa og okkur þykir mjög vænt um. Ég fæ svo að dunda mér við það allt árið að safna vinningum,“ segir hún og hlær.

Fjölskyldan í jólanáttfötunum; Alfa, Lilja Dögun, Jakob Jóhann og Baldvin Freyr. 

Mistök að fara á sólarströnd um jólin

Á öðrum degi jóla tekur svo við annar fastur liður sem fjölskyldan kallar Öldugötuleikana, en þeir fara fram hjá foreldrum Ölfu á Öldugötunni. „Þar skiptum við stórfjölskyldunni í lið og förum í alls konar þrautir áður en við borðum saman. Við byrjuðum með þetta árið 2016 eða 2017 og síðan þá hefur þetta bara stækkað. Það er farandbikar í boði og keppnisskapið er ansi mikið.“ Fjölskyldan hefur stækkað jafnt og þétt með tengdabörnum og barnabörnum og síðustu jól varð hópurinn orðinn svo stór að heimilið dugði ekki lengur. „Ég endaði á að leigja íþróttahús fyrir stærstu þrautirnar,“ segir Alfa og heldur áfram: „Við gerðum, ég ætla ekki að segja mistök, en við héldum jólin í fyrra eða hittifyrra erlendis á sólarströnd. Við sögðum öll þegar við komum heim að það myndi aldrei gerast aftur af því að okkur leið bara eins og við hefðum misst af jólunum.“

Jólin – besti tími ársins

Aðspurð hvað það sé sem geri jólin svona sérstök stendur ekki á svari hjá Ölfu. „Þetta er bara besti tími ársins. Þessi tími opnar eitthvað hjá fólki. Fólk verður hlýrra og opnara. Ég bara elska þennan tíma og hvers vegna ætti maður ekki að reyna að dreifa þessari stemningu yfir árið?“ Hún hvetur jólabörn til þess að koma við í garðinum hjá fjölskyldunni næsta sumar þegar viðburðurinn verður haldinn næst eða hreinlega að halda sín eigin jól í júlí. „Okkur finnst gaman að skapa tilefni fyrir fólk til að koma saman og njóta samverunnar, hvort sem það er í desember eða í júlí. Það ættu bara allir að halda líka jól í júlí.“

Heimilishundurinn Loki tekur að sjálfsögðu þátt í gleðinni og klæðir sig upp á eins og aðrir í fjölskyldunni og gestir. 

Kátt á hjalla á jólum í júlí. Krakkarnir fá kandífloss, gestir syngja jólalög og setja upp jólasveinahúfur.