Fara í efni
Fréttir

Teljari kominn á leiðina upp að Skólavörðu

Hvort ganga fleiri á Skólavörðu á morgnana eða kvöldin? Nýi teljarinn mun geta svarað því. Hér er Jón Kristinn að störfum þegar verið var að setja teljarann upp. Mynd: FFA

Ferðafélag Akureyrar setti nýlega upp gönguteljara á leiðinni upp að Skólavörðu. Teljarinn er staðsettur við litla göngubrú á leiðinni frá bílastæðinu og telur sjálfkrafa þá sem fara þar um. Markmiðið er að safna upplýsingum um umferð á þessari vinsælu gönguleið og skoða meðal annars hvernig veður hefur áhrif á fjölda göngufólks. 

  • Skólavarða er efst á Vaðlaheiði, sunnan Veigastaðavatns. Varðan var hlaðin um 1930 af nemendum Menntaskólans á Akureyri. Falleg og vinsæl gönguleið liggur að Skólavörðu og frá henni er mikið útsýni yfir Eyjafjörð og Akureyri handan fjarðar. Hér er leiðarlýsing fyrir gönguleiðina. 

Að sögn Jóns Kristins Helgasonar, sem er varamaður í stjórn FFA og kom að uppsetningu búnaðarins, verða gögn úr teljaranum tekin saman þegar göngutímabilinu lýkur í haust. Vonast er til þess að teljarinn verði einnig í notkun næsta sumar og að niðurstöðurnar nýtist til að auka þekkingu á nýtingu gönguleiðarinnar.  Teljarinn er fjarlægðarskynjari sem skynjar þegar fólk gengur yfir göngubrúna. Göngufólk þarf ekki að snerta tækið; það telur sjálfkrafa þegar einhver fer fram hjá. Þá greinir teljarinn í hvora áttina fólk fer, þ.e. hvort það sé á leið upp eða niður. Gögnin eru send inn í kerfi þar sem Ferðafélag Akureyrar getur síðar tekið þau út og unnið úr þeim.

Skólavarðan er ein af þeim gönguleiðum sem Ferðafélag Akureyrar sér um að viðhalda, meðal annars með stikun og öðru viðhaldi. Teljarann fékk FFA notaðan frá Ferðamálastofu en Ferðamálastofa var að ljúka við að endurnýja alla teljara og tæknibúnað sem notaður er við talningu gesta á fjölmennustu áfangastöðum landsins. 

Frá uppsetningu teljarans við göngubrúna. Hér má sjá þá Ingvar Teitsson sem var formaður FFA á árunum 1994-2006 og Gunnar Má Gunnarsson, núverandi formann félagsins, að störfum.