Menning
Teikning, ljóð, Skálmöld, blásaraveisla og Gildran
16.03.2026 kl. 10:30
Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Leiksýningar
- Birtíngur hjá Leikfélagi Akureyrar. Samkomuhúsið, föstudag og laugardag 20. og 21. mars kl. 20.00.
- Ljóska í gegn - Leikfélag Menntaskólans á Akureyri. Sýna föstudaginn 20. mars í Hamraborg í Hofi kl. 20.00. Síðustu sýningar sunnudaginn 22. mars kl. 16:00 og 20:00.
- Átta konur - Leikfélag Hörgdæla að Melum. Föstudaginn 20. mars og laugardag 21. mars kl. 20.00.
- Tom, Dick & Harry - Freyvangsleikhúsið. Föstudag 20. mars og laugardag 21. mars kl. 20.00.
Tónleikar
- Afmælissólóveisla blásarasveita Tónak - Hamraborg, Hofi, þriðjudaginn 17. mars kl. 17:30. Í tilefni 80 ára afmælis Tónlistarskólans, ókeypis aðgangur.
- Þorgerðartónleikar til styrktar ungu tónlistarfólki á leið í framhaldsnám. Hömrum í Hofi, miðvikudaginn 18. mars kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis en tekið við frjálsum framlögum.
- Kvöldroði - Eik Haraldsdóttir og stórsveit. Frumsamin íslensk djasslög sem söngkonan Eik samdi fyrir útskriftartónleika sína í LHÍ. Fimmtudaginn 19. mars kl. 20.00 í Black box í Hofi.
- Skálmöld á Græna hattinum - Föstudag og laugardag, 20. og 21. mars kl. 21:00. Fáir miðar eftir á föstudag og uppselt laugardag.
- Hljómsveitin Kuldaboli á Leyni – Laugardagskvöld 21. mars kl. 21:00. Trúbadorinn Haffi hitar upp.
- Gildran 40 ára - afmælistónleikar í Hamraborg í Hofi. Laugardaginn 21. mars kl. 20.00.
Viðburðir
- Áfall - og hvað svo? Bókakynning Dr. Sigrúnar Sigurðardóttur. Mánudag, 16. mars kl. 16:30 í Miðborg (HA).
- Samstarf Myndlistarfélagsins við Føroysk Myndlistafólk - fyrirlestur Brynhildar Kristinsdóttur og Kristjáns Helgasonar um JÁ JÁ samsýningu. Þriðjudagsfyrirlestur á Listasafninu. Þriðjudag 17. mars kl. 16:15 - 17.
- Ljóðamót 01 - norðlensk skáld – Fyrsta af mánaðarlegum ljóðamótum Ljóðaklúbbs Akureyrar í Svörtum bókum. Umsjón: Rakel Hinriksdóttir og Arnar Már Arngrímsson. Þriðjudagskvöld, 17. mars kl. 20.00.
- Módelteikning í Deiglunni / Life drawing in Deiglan – Þriðjudagskvöld kl. 19:00-21:00. Óskað eftir skráningu.
- Skreytingar í handritum síðari alda - Kjartan Atli Ísleifsson segir frá. Hluti fyrirlestrarraðar Akureyrarakademíunnar, Sagnfræðingafélags Íslands og Minjasafnsins á Akureyri, 'Fortíðin í nýju ljósi'. Aðalstræti 58, fimmtudaginn 19. mars kl 17:00 - 17:45.
- Ritlistakvöld með Margréti S. Höskuldsdóttur á LYST – Fyrra ritlistakvöld Ungskálda. Kvöldið er ætlað 16-25 ára sem hafa áhuga á ritlist. Skráningar er þörf. Miðvikudag, 18. mars kl. 20:00-22:00.
- Útgáfuhóf: Ég vil ekki vera vinur þinn, bók Péturs Þór Jónassonar. Fimmtudag 19. mars kl. 17:00 á Ketilkaffi.
- Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
- Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 24. mars er næsti hittingur.
- Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
- Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.

Fjölbreyttir tónleikar eru í boði þessa vikuna, en Gildran heldur 40 ára afmælistónleika í Hofi, Skálmöld hristir hattinn, Eik Haralds og stórsveit flytja frumsamda djasstónlist í Blackbox í Hofi, Kuldaboli, nýtt band úr hugarfylgsnum Kristnesbræðranna Helga og Begga ásamt fleirum, kemur fram á Leyni o.fl.
Listasýningar
- Sköpun bernskunnar 2026 – Listasafnið á Akureyri. Samstarf listakonunnar Sunnu Svavarsdóttur og barna í Tröllaborgum, Brekkuskóla, Glerárskóla, Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
- Laugardagsleiðsögn um sýninguna Sköpun bernskunnar á Listasafni Akureyrar. Laugardag 20. mars kl. 15:00.
- Fjölskylduleiðsögn og listasmiðja - Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar á Listasafninu leiðir leiðsögn og listasmiðju á safninu. Sunnudag 22. mars frá 11:00-12:00.
- Guðmundur Ármann: Aðflæði – Yfirlitssýning listamannsins, sem spannar 65 ára feril. Sýnt á Listasafninu á Akureyri, en sýningin stendur til 4. maí 2026.
- Björk Viggósdóttir - Hreyfing fyrir sjón / Movement for vision – Sýning á Listasafninu á Akureyri. Stendur til 3. maí 2026.
- Vítahringur / Vicious circle - Listasýning Ólafs Sveinssonar og Boaz Yosef Friedman í Mjólkurbúðinni. Opið laugardag 28. feb og sunnudag 1. mars á milli 14-17.
- Litasinfóníur - myndlistasýning Rósu Njálsdóttur á Bókasafni HA. Þar eftir er opið á opnunartíma bókasafnsins.
- Undir berum himni - Jóhannes Sveinsson Kjarval. Sýning á teikningum og skissum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals á Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 17. maí 2026.
Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.