Fara í efni
Fréttir

Tæpar 100 milljónir í frístundastyrki 2021

Mynd af vef Akureyrarbæjar.

Alls fengu 2.602 börn og unglingar á aldrinum sex til 17 ára greiddan frístundastyrk Akureyrarbæjar árið 2021, um 79% þeirra sem áttu rétt á styrknum. Í heildina greiddi bærinn tæpar 98 milljónir króna í frístundastyrki á síðasta ári. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

„Frístundastyrkur Akureyrarbæjar nam 40.000 krónum á hvern iðkanda árið 2021. Í heildina var tæplega 98 milljónum króna varið í frístundastyrki í 3.554 skráningum sem jafngildir styrk upp á 37.618 krónur að meðaltali á hvern iðkanda,“ segir í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

„Skráningum árið 2021 fækkaði eilítið frá árinu 2020. Þótt ómögulegt sé að fullyrða um ástæður þess má leiða líkur að því að heimsfaraldur og samkomutakmarkanir hafi haft sitt að segja.

Kynjahlutfall skráninga var hér um bil jafnt, 50,4% drengir og 49,6% stúlkur. Flestar skráningar voru hjá íþróttafélaginu Þór og Knattspyrnufélagi Akureyrar. Samstarfsaðilar (íþrótta-, æskulýðs og tómstundafélög auk fyrirtækja) sem tóku við frístundastyrk 2021 voru samtals 41 talsins.

Markmið með frístundastyrk Akureyrarbæjar er að styrkja börn og unglinga til þátttöku í uppbyggilegu frístundastarfi og auka möguleika til þátttöku óháð efnahag. Einnig að ýta undir aukna hreyfingu, virkni og félagsþátttöku sem og að vinna gegn óæskilegu brottfalli í eldri aldurshópum iðkenda.“