Tækjakaup Slökkviliðs í hæsta forgangi

Vegna aukinna umsvifa á Akureyrarflugvelli getur Slökkvilið Akureyrar ekki lengur treyst á sameiginlegan tankbíl af flugvellinum og hyggst því fjárfesta í nýjum krókheysisbíl og 10.000 lítra vatnstanki. Slökkviliðsstjóri segir Slökkvilið Akureyrar ekki uppfylla lágmarkskröfur um starfsemi slökkviliða.
Umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrar hefur fyrir sitt leyti samþykkt tillögu slökkviliðsstjóra um að fara í útboð og vísaði málinu til bæjarráðs. Gert er ráð fyrir að kostnaður geti orðið um 38 milljónir króna.
Sameign ekki lengur fýsileg
Slökkvilið Akureyrar og Isavia eiga saman slökkvibíl, en vegna aukinna umsvifa á Akureyrarflugvelli eru báðir aðilar sammála um að sameign bílsins sé ekki lengur fýsilegur kostur.
Í erindi sínu til umhverfis- og mannvirkjaráðs segir Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri umbeðin kaup mjög mikilvæg út frá öryggissjónarmiðum. Eins og staðan er núna uppfylli Slökkvilið Akureyrar ekki lágmarkskröfur um starfsemi slökkviliða og því í hæsta forgangi að kaupa umrædd tæki.
Hvað er krókheysisbíll, gætu einhverjir lesenda spurt. Myndirnar hér að ofan ættu að geta svarað þeirri spurningu. Myndirnar eru fengar af vef Veltis.
Gunnar Rúnar bendir jafnframt á að krókheysisbíll þjóni víðari tilgangi en að flytja vatn, til dæmis að flytja gám slökkviliðsins þegar þörf er á vegna eiturefna- og mengunarvarna, en í dag þarf slökkviliðið að treysta á fyrirtæki í bænum til að koma búnaði á skaðasvæði. Með kaupum á krókheysisbíl og vatnstanki er tilgangurinn einnig að bæta viðbragðsgetu slökkviliðsins við eldum og öðrum neyðartilfellum, bæði í þéttbýli og dreifbýli, sérstaklega í stórum og tímafrekum aðgerðum. Þá getur bíllinn borið eiturefnagám, slöngugám, gámafleti, búnaðargám og fleira þannig að hér er um margnota tæki að ræða.
Auka sveigjanleika, sjálfstæði og úthald slökkviliðsins
„Með þessari fjárfestingu er verið að auka sveigjanleika, sjálfstæði og úthald slökkviliðsins við fjölbreytt verkefni,“ segir Gunnar Rúnar í erindinu til umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Tíu þúsund lítra vatnstankur tryggir nægilegt vatn á vettvangi og er til að mynda mjög mikilvægur við verkefni í dreifbýli þar sem vatnsöflun getur verið erfið og tímafrek. „Þetta gerir slökkviliðinu kleift að hefja aðgerðir án tafar, óháð því hvort nægilegt vatn sé í nágrenninu. Vatnstankur skiptir miklu máli í umfagnsmiklum eldum, t.d. í iðnaðarhúsnæði, sinueldum og skógarbruna,“ segir Gunnar Rúnar. Fljótlegt er að koma tankinum á krókheysisbílinn og færa hann á milli staða, sem eykur sveigjanleika í viðbragði slökkviliðsins.
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Umrædd fjárfesting er ekki aðeins viðbrögð við breyttum aðstæðum með auknum umsvifum á Akureyrarflugvelli heldur einnig í takt við þróunina í samfélaginu. Gunnar Rúnar bendir á að með aukinni byggð, iðnaði og aukinni hættu á gróðureldum aukist líkur á brunum og vatnsþörf aukist samhliða. Eins og áður kom fram er núverandi staða slökkviliðsins þannig að það geti ekki lengur treyst á sameiginlegan tankbíl af flugvellinum.
Mikilvægt að sveitarfélögin taki þátt
Gert er ráð fyrir að krókheysisbíll kosti 35 milljónir, 10.000 lítra vatnstankur um 2,6 milljónir og vatnslaug um 700 þúsund krónur. Þessar upphæðir eru án virðisaukaskatts enda fæst virðisaukaskattur af slíkum tækjum endurgreiddur. Niðurstaða af athugunum slökkviliðsstjóra og samtölum við kollega er að ekki borgi sig að kaupa notuð tæki þó í því gæti falist sparnaður í upphafi.
Um fjármögnun kaupanna kemur meðal annars fram hjá slökkviliðsstjóra að gert er ráð fyrir að sala á hlut Slökkviliðs Akureyrar í sameiginlegum tankbíl á Akureyrarflugvelli gefi um fimm milljónir króna. Þá bendir hann á að mikilvægt sé að sveitarfélög sem eru með samning við Akureyrarbæ um rekstur slökkviliðs, sem eru Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhreppur, komi að fjármögnun á tækinu. Notkunargildi tankbíls miðist að miklu leyti við svæði þar sem aðgengi að slökkvivatni er takmarkað, svo sem á sveitabæjum, í sumarhúsabyggðum og á grónum svæðum utan þéttbýlis. Því sé sanngjarnt að sveitarfélög sem treysta á að Slökkvilið Akureyrar hafi getu til að bregðast við slíkum aðstæðum taki þátt í fjármögnun á svo mikilvægu tæki til slökkvistarfa.