Fara í efni
Fréttir

Systkini Arnars stofna minningarsjóð

Minningarsjóður um Arnar Gunnarsson, kennara og handknattleiksþjálfara sem lést 3. mars 2023 var formlega stofnaður í dag, 2. apríl. Það eru systkini Arnars sem standa að stofnuninni, en á þessum degi fyrir ári síðan fannst Arnar látinn í fjöruborðinu við Fitjabraut í Reykjanesbæ.

Við erum bæði stolt og hrærð á þessum degi þegar minningarsjóðurinn um Adda bróður er stofnaður, honum til heiðurs og höldum við þannig minningunni, um góðan dreng og hans störf í þágu handboltans, á lofti,“ segir Samúel Ívar Árnason, bróðir Arnars, í tilkynningu.

Þar segir:

  • Sjóðnum er ætlað að styðja við unga og efnilega handboltaiðkendur sem stefna hátt, sem og að auka fræðslu til foreldra og forráðamanna barna í íþróttum.
  • Sjóðurinn hefur sömuleiðis þann tilgang að heiðra minningu Arnars

Hægt er að leggja inn frjáls framlög á reikning hjá Sparisjóði Höfðhverfinga þar sem Arnar var viðskiptavinur um árabil.

  • Minningarsjóður um Adda – 1187 - 05 - 255000
  • Kennitala: 6503241450

Systkini Arnars sem standa að sjóðnum, frá vinstri: Sólveig Árnadóttir, Stefán Árnason og Samúel Ívar Árnason.