Fara í efni
Mannlíf

Sýslumaður neitaði að gifta þau á óhappadegi

Olga og Bert á brúðkaupsdaginn 16.05. 2011. Þau elska Ísland og voru nýlega á ferð um Norðurland þar sem þau endurgerðu myndirnar frá brúðkaupsdeginum sínum.

Margt ferðafólk sem heimsækir Ísland fellur kylliflatt fyrir landinu og heimsækir það aftur og aftur. Þýsku hjónin Olga Leinweber og Bert Schuch eru ein þeirra en þau ákváðu að gifta sig á Akureyri fyrir 14 árum síðan þar sem þeim fannst rauðu hjartaljósin krúttleg og rómantísk. Nýlega voru þau á ferð um Norðurlandið og ákváðu þá að endurgera sem flestar ljósmyndirnar frá brúðkaupsdeginum sínum.

„Við komum til Akureyrar þann 11. maí árið 2011 og vildum gifta okkur á föstudegi en gerðum okkur ekki grein fyrir því að sá dagur var föstudagurinn þrettándi. Þáverandi sýslumaður, Björn Jósef Arnviðarson, tók á móti okkur á sýslumannsskrifstofunni og sagði okkur að hann myndi ekki gifta okkur á föstudeginum þrettánda, það myndi færa okkur óheppni. Auk þess sem ferðamenn sem dveldu yfir helgi á Akureyri myndu gefa bænum meira. Svo við lengdum dvöl okkar á Akureyri með ánægju og giftum okkur mánudaginn 16. maí í góðu veðri og í góðu skapi,“ segir Bert þegar hann er beðinn um að rifja upp brúðkaupsdaginn á Akureyri fyrir 14 árum síðan.

Þáverandi sýslumaður, Björn Jósef Arnviðarson, gaf þýska parið saman á mánudeginum 16. maí 2011 í staðinn fyrir föstudaginn þrettánda. 

Lopapeysa brúðardressið

Helgina nýtti parið til þess að finna viðeigandi fatnað fyrir athöfnina. „Þetta var mitt annað brúðkaup en í því fyrra, fyrir löngu síðan, var ég klædd hefðbundnum brúðarkjól og fagnaði í Þýskalandi með fjölda ættingja og vina. Í þetta skipti vildi ég, eins og Bert, eitthvað annað, eitthvað einstakt og sérstakt, eitthvað sem var ekki hefðbundið. Mér varð strax ljóst að ég myndi gifta mig í ekta íslenskri lopapeysu. Ég keypti lopapeysuna á Akureyri og mátaði margar mismunandi gerðir,“ segir Olga og upplýsir að hún hafi keypt fleiri lopapeysur í leiðinni en aðeins þá sem hún klæddist á brúðkaupsdaginn. „Í raun vissu aðeins foreldrar okkar og nánustu vinir um brúðkaupið. Við notuðum ókeypis Wifi í menningarhúsinu Hofi til að spjalla við fjölskyldu okkar og vini í gegnum myndsímtal eftir brúðkaupið.“

Fjórtán ár á milli mynda. 

Hjörtun á Akureyri rómantísk

Ást þeirra hjóna til Íslands má rekja til ársins 2010 þegar þau heimsóttu landið í fyrsta sinn og féllu algjörlega fyrir því. Ári seinna voru þau komin aftur til þess að láta gefa sig saman á Akureyri. „Þar sem við höfðum sérstakt dálæti á Norðurlandi varð Akureyri fyrir valinu fyrir brúðkaupið. Enn fremur var Akureyri eini valkosturinn vegna þess að hann er bærinn með hjörtunum. Okkur fannst það rómantískt og sérstakt,“ segir Bert og heldur áfram: „Sólin skein á brúðkaupsdaginn og veðrið var fullkomið. Á leiðinni á sýslumannsskrifstofuna voru alls staðar rauð hjörtu í umferðarljósunum. Brúðkaupsathöfnin var einföld, hlý og ástúðleg en við urðum aðeins hissa þegar sýslumaður stóð skyndilega fyrir framan okkur í hátíðarbúning. Við höfðum ekki búist við því en okkur fannst það mjög virðulegt. Svo fengum við líka frábæra ábendingu um hvar við gætum komist í  heitan pott hjá bónda. Við fórum beint þangað eftir athöfnina og fengum leyfi til að nota pottinn. Þá fengum við líka skoðunarferð um bæinn og Olga fékk að knúsa lítil lömb. Það var virkilega gaman og skemmtilegt.“

Á ferð um nágrenni Akureyrar á brúðkaupsdaginn fyrir 14 árum síðan. 

Snjókoma og kampavín

Hjónin nýttu brúðkaupsdaginn til þess að kanna svæðið í kringum Akureyri og tóku fullt af skemmtilegum myndum. Segja þau daginn hafa verið skemmtilegan og einstakan. „Aðeins baðið okkar í heita pottinum var svolítið stutt því þegar við fundum pottinn og vorum komin ofan í  fór skyndilega að snjóa. Við flúðum hálfnakin aftur í bílinn. Um kvöldið skáluðum við fyrir giftingunni með gestgjöfum okkar á gistiheimilinu Súlum og drukkum kampavín.“

Brúðkaupsmyndataka á Akureyri árið 2011. Hjónin reyndu að heimsækja alla staði úr brúðkaupsferðinni og endurskapa myndirnar 14 árum síðar. 

Endurgerðu myndirnar úr brúðkaupsferðinni

Olga og Bert kynntust upphaflega á bar í Münster þar sem þau eru búsett í dag. Þau voru þar bæði með vinum sínum en þar sem varla voru nein laus sæti á barnum það kvöld, enduðu þau á að sitja saman við borð. „Við spjölluðum lengi um kvöldið og uppgötvuðum margt sem við áttum sameiginlegt,“ segir Bernt um upphaf kynna þeirra. Parið fór svo saman í borgarferð til Reykjavíkur árið 2010 og árið eftir komu þau aftur og giftu sig þá á Akureyri. Eins komu þau til landsins árið 2014 og 2016 og hefðu komið oftar ef ekki hefði verið fyrir covid. Loks komu þau aftur í  maí síðastliðnum en í ferðinni ákváðu þau að endurgera ljósmyndirnar úr brúðkaupsferðalaginu. „Við vildum vera aftur á Akureyri á brúðkaupsdaginn okkar en endurgerð myndanna var frekar skyndileg hugmynd. Því miður vorum við ekki með þrífót í þetta skipti og tókum myndirnar aðeins með farsímanum. Suma staði fundum við ekki aftur og svo höfðu aðrir breyst, eins og t.d. höfnin á Akureyri, svo við þurftum aðeins að spinna þar. Því miður fundum við ekki bóndabæinn með lömbunum og heita pottinum. Við reynum aftur næst,“ segja þau og eru ánægð með myndirnar þó að vissulega hafi verið erfiðara að endurskapa sumar þeirra. Til dæmis var erfiðara að endurgera myndina fyrir utan Grundarkirkju þar sem Bert er með Olgu í fanginu. Telur Bert líklegt að Olga hafi bætt á sig nokkrum kílóum eða að hann sé bara orðinn eldri og ekki eins sterkur.

Leitað að rétta brúðkaupsdressinu á Akureyri.

Frúin hafði eitthvað þyngst frá árinu 2011 eða vöðvarnir rýrnað hjá eiginmanninum því brösuglega gekk að endurgera þessa mynd!

Ísland kemur alltaf á óvart

Aðspurð hvort þau hafi merkt einhvern mun á Akureyri frá þeirra síðustu ferð segja þau að Akureyri og Ísland í heild sinni sé orðið mun ferðamannavænna. „Þetta er í fimmta skipti sem við ferðumst um Ísland. Við vorum í Reykjavík og nágrenni árið 2010. Árin 2011, 2014, 2016 og í ár keyrðum við  allan hringinn í hvert skipti. Aðeins Snæfellsnesið höfum við enn ekki getað heimsótt í ró og næði en við tökum það líklega næst. Við höfum lent í stormi, rigningu, þoku og svo framvegis en Ísland kemur á óvart í hvert skipti með heillandi náttúru. Eftir núverandi ferð getum við þó sagt að okkur líki að minnsta kosti miklu betur á Norðurlandi og finnum jafnvel meiri ró og náttúru hér samanborið við ferðamannastaðina á Suðurlandi. Sem betur fer hefur gestrisni Akureyringa og einstaki ísinn frá Brynju ekki breyst. Tjaldsvæðið er mjög fallega útbúið og hefur aðeins batnað á undanförnum árum. Við vorum líka mjög heppin með veðrið í þetta skipti. Takk Akureyri,“ segja þau að lokum. 

Hjónin eru Land Rover fólk og hafa ferðast um allt Ísland á eigin bíl. Brúðkaupsbílinn var Land Rover Defender 90 en núverandi bíll þeirra er Defender 110.