Fara í efni
Menning

Sýning opnuð í Laufási: Krumminn á skjánum

Christina Finke starfsmaður Minjasafnsins sem bjó til rannsóknarsýninguna Krumminn á skjánum.

Örsýningin Krumminn á skjánum verður opnuð í gestastofunni í Laufási klukkan 14.00 í dag. Það er Christina Finke starfsmaður Minjasafnsins á Akureyri sem bjó til þessa athyglisverðu rannsóknarsýningu.

„Hvað gerði fólk til að fá birtu í bæinn áður glerið varð aðgengilegt fyrir almenning á Íslandi? Hafið þið heyrt um skjáglugga? Glugga gerðir úr líknarbelg, lífhimnu og fiskiroði? Hvernig bjuggu formæður og forfeður okkar til svona glugga?“ er spurt í kynningu safnsins.

„Að búa til skjáglugga úr dýraafurðum eins og voru í torfbæjum á Íslandi í gegnum aldirnar var hugmynd sem þróaðist í rannsókna- og tilraunaverkefni og varð að skemmtilegri sýningu.“

Sýningin verður opnuð klukkan 14.00 sem fyrr segir og í dag verður opið til klukkan 16.00. Annars er opið alla daga í Laufási frá klukkan 11.00 til 17.00.