Fara í efni
Menning

Súpa - Listvinnustofa fyrir 7-9 ára börn

Hvað myndir þú setja í súpu? Á laugardag og sunnudag verður haldin listvinnustofa fyrir 7-9 ára börn þar sem þátttakendur fá tækifæri til að vinna með náttúrulega liti, áferð og ólíka fleti og skapa saman eitt stórt listaverk.

Í smiðjunni verður meðal annars unnið með liti úr rauðrófum, kaffi og túrmeriki. En súpan þarf ekki að snúast um mat því börnin geta einnig sett í ímyndaðan súpupott minningar, tilfinningar, fólk, staði eða hvað annað sem þeim finnst eiga heima þar. Verk hvers barns verða síðan hluti af einu sameiginlegu klippimyndaverki sem verður til úr ólíkum hugmyndum og ímyndunarafli þátttakendanna.

Smiðjan ber heitið Súpa og er ætlað að skapa rými fyrir börnin til að velta fyrir sér heimili, tengsl og sköpun, auk þess að upplifa hvernig hægt er að búa eitthvað til saman.

Listvinnustofan fer fram laugardaginn 3. október og sunnudaginn 4. október klukkan 11-14. Aðeins eru átta pláss í boði og því er skráning nauðsynleg. Hún fer fram á netfanginu flora.akureyri@gmail.com. Þátttaka í smiðjunni er án endurgjalds en skráningargjald er 2.000 krónur.

Leiðbeinandi er Tereza Kocian, myndlistarkona sem vinnur með fjölbreytta miðla, meðal annars málverk, textíl og grafíska hönnun. Í verkum sínum fjallar hún um landslag, minningar og tengsl mannsins við staði og skapar heima þar sem raunveruleiki og ímyndunarafl mætast.

Sýningaropnun verður sunnudaginn 4. október klukkan 14 í Sigurhæðum, þar sem sameiginlegt verk úr listvinnustofunni verður til sýnis.