Sundmenningarveisla á Grenivík í kvöld
Áhugverður viðburður verður í Sundlaug Grenivíkur í kvöld sem ástæða er til að segja Akureyringum og öðrum Eyfirðingum frá; Sundlaugamenning í Grýtubakkahreppi í tali og tónum þar ýmissa grasa kennir í dagskránni.
Í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO (Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna) yfir óáþreifanlega menningararfleifð heims auglýsti menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins verkefnið sem verður að veruleika á Grenivík í kvöld er eitt þeirra sem hlaut styrk.
Viðburðurinn hefst kl. 19:30. Nemendur í Grenivíkurskóla flytja tónlistaratriði, gamlar ljósmyndir verða sýndar, Björn Ingólfsson fyrrverandi skólastjóri flytur erindi um sögu sundlaugamenningar í Grýtubakkahreppi og að lokum verður slegið upp sundlaugarpartýi þar sem Húsbandið frá Grenivík ásamt eistneska tónlistarmanninum Aivar Vassiljev halda uppi fjörinu.
Frítt er í sund og á viðburðinn og eru allir velkomnir, ýmist í sundlaugina, heita pottinn eða á sundlaugarbakkann á meðan „húsrúm leyfir“ eins og segir í tilkynningu.
Boðið verður upp á léttar veitingar en áætlað er að dagskrá ljúki um klukkan 21:00.