Sumartónar, Mannakorn, RÓT og Pastel
Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið. Barnamenningarhátíð nær hámarki með tónleikum og nóg á seyði fyrir unga fólkið í bland við aðra viðburði. HÉR má skoða viðburðadagatal Barnamenningarhátíðar.
Tónleikar
- SUMARTÓNAR 2026 - St. Pete og Karólína - Barnamenningarhátíð nær hámarki með tónleikum sumartóna, fimmtudaginn 23. apríl, sumardaginn fyrsta, kl. 15:00.
- Biggi Maus og Stína Ágústsdóttir - Græna hattinum, fimmtudaginn 23. apríl kl. 21:00.
- Hvanndalsbræður á Græna - föstudaginn 24. apríl kl. 21:00.
- Mannakorn í Hofi - Tónleikar í Hamraborg, föstudagskvöldið 24. apríl kl. 20:00. Landslið hljóðfæraleikara undir stjórn Þóris Úlfars verður Mannakornum til halds og trausts.
- KUSK & ÓVITI á Leyni - Hrannar og Kolbrún mynda popptónlistartvíeykið. Laugardagskvöld 25. apríl kl. 21:00.
- Ágúst á Græna - Útgáfutónleikar fyrir plötuna 'Hjartað á milljón', laugardaginn 25. apríl kl. 21:00.
- Á ljúflingshól - Tónleikar með lögum Jónasar og Jóns Múla Árnasonar. Hamraborg í Hofi, sunnudaginn 25. apríl kl. 20:30.
Leiksýningar
- RÓT - ljóðrænt brúðuleikrit fyrir fjölskyldur. Mælt með fyrir 8 ára og eldri. Sýnt í Samkomuhúsinu, 25. apríl, 26. apríl og 3. maí kl. 16:00.

Sumardagurinn fyrsti verður líflegur á Akureyri að vanda, en sem dæmi má nefna verður opið hús í Sigurhæðum með útgáfuhófi Mars Baldurs og Hildar Eirar í Pastel, eyfirski safnadagurinn er á sínum stað og Sumartónar - tónleikar barnamenningarhátíðar verða í Hofi.
Viðburðir
- Hæfileikakeppni Akureyrar 2026 - Nemendur í 5.-10. bekk í grunnskólum Akureyrar sýna listir sínar. Öll velkomin. Miðvikudag 22. apríl kl. 16:00 í Hofi.
- Opnaðu bæinn inn með sól! - Opið hús í Sigurhæðum og útgáfuhóf Pastel - Mars Baldurs og Hildur Eir gefa út ný rit. Sumardaginn fyrsta, fimmtudag, kl. 13:00. Opið til kl. 17.
- Eyfirski safnadagurinn - Söfnin í Eyjafirði bjóða í heimsókn á sumardaginn fyrsta. Boðið verður upp á útgáfuhóf, ratleiki, útileiki, húllasmiðju, afrískan dans, listsmiðjur, leiðsagnir, ljóðalestur og fjölbreyttar sýningar. Skoðaðu dagskrána hér.
- Far Fest Afrika - Dillandi afrísk dans- og trommugleði. Ketilhúsinu, fimmtudaginn 23. apríl kl. 14:00.
- Salsakvöld og ókeypis prufutími í salsa - Vamos. Fimmtudaginn 23. april kl. 20.00.
- Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
- Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 21. apríl er næsti hittingur.
- Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
- Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.
Listasýningar
- Hlynur Hallsson opnar sýninguna „Sumardagurinn fyrsti / Der erste Sommertag / The first day of summer" í Leyni, Hafnarstræti 95 á Akureyri 23. apríl 2026 kl. 20 sem er einmitt sumardagurinn fyrsti. Hlynur sýnir ný og nýleg spreyverk.
- Ýmislegt allskonar - Opin smiðja fyrir fjölskyldur í Listasafninu - fimmtudaginn 23. apríl kl. 12 - 15.
- Sögur á iði - Sýning fjöltyngdra barna á Leikskólanum Iðavelli - sýnt á Amtsbókasafninu 8. - 30. apríl. Hluti barnamenningarhátíðar.
- Tales from moss and fern - myndlistasýning Terezu Kocián á Leyni. Opið á opnunartíma Leyni, 13-23, til 23. apríl.
- Saga Íslands: 2. hluti - Eiríkur Páll Sveinsson prentaði út internetið í árdaga þess.
- Úlfur Logason - Guð launi þér – Myndlistarsýning.
- Hughrif - Litir - Form I - Valin verk fyrir sköpun og fræðslu.
- Ævintýraglugginn - GLUGGINN Hafnarstræti 88. Þreföld afmælisveisla, barnafmæli, dúkku- og dýraafmæli og barbíafmæli. Sýningin er uppi til. 1.maí.
- Sköpun bernskunnar 2026 – Listasafnið á Akureyri. Samstarf listakonunnar Sunnu Svavarsdóttur og barna í Tröllaborgum, Brekkuskóla, Glerárskóla, Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
- Guðmundur Ármann: Aðflæði – Yfirlitssýning listamannsins, sem spannar 65 ára feril. Sýnt á Listasafninu á Akureyri, en sýningin stendur til 4. maí 2026.
- Björk Viggósdóttir - Hreyfing fyrir sjón / Movement for vision – Sýning á Listasafninu á Akureyri. Stendur til 3. maí 2026.
- Undir berum himni - Jóhannes Sveinsson Kjarval. Sýning á teikningum og skissum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals á Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 17. maí 2026.
Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.