Sumar- og bjórhátíðin orðin fastur liður
Sumar- og bjórhátíð LYST fer fram á Akureyri um helgina en þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin í núverandi mynd. Að sögn Reynis Grétarssonar, eiganda LYST, hefur markmiðið frá upphafi fyrst og fremst verið að skapa skemmtilegan sumarviðburð fyrir Akureyringa.
„Mig langaði að gera eitthvað fyrir heimafólkið. Á sumrin er oft svo mikil áhersla á ferðamenn en mig langaði að búa til viðburð þar sem Akureyringar gætu komið saman, notið dagsins og upplifað eitthvað skemmtilegt í eigin bæ,“ segir Reynir. Hátíðin hófst fyrir 5 árum síðan en var þá smærri í sniðum. Viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum og síðan hefur viðburðurinn vaxið jafnt og þétt.
Fyrir þá sem ekki þekkja hátíðina þá hefst hún á föstudag þar sem boðið verður upp á happy hour tilboð á völdum börum á Akureyri sem og matartilboð fyrir þá sem kaupa armband á hátíðina. Laugardagurinn, 18. júlí, er svo aðaldagurinn, en milli kl. 13 og 18 verður mikið um að vera í Lystigarðinum við LYST. Armbandshafar geta þá smakkað ótakmarkað af bjór hjá þeim brugghúsum sem taka þátt í hátíðinni. Á svæðinu verður fjölbreytt matarframboð frá eldhúsi LYST, meðal annars lambaborgarar, pylsuspjót og bakkelsi frá Brauð & Co. Einnig verða gosdrykkir, safi og kaffi í boði. Þá verður lifandi tónlist í boði yfir daginn þegar Jazztríó Tómasar Herring og gestir leika. Um kvöldið verða útitónleikar með Daða Frey og Sturlu Atlas. Eftir tónleikana heldur stuðið svo áfram á Leyni með Sturla Atlas.

Armband á hátíðina gildir í bjórsmakk milli 13:00–18:00 á laugardeginum. Eins gildir það sem miði á útitónleikana með Daða Frey ásamt því að veita afslætti um allan bæ yfir helgina. Ekki er þó nauðsynlegt að kaupa armaband til þess að geta tekið þátt í stemmingunni, hægt er að kaupa staka drykkjarmiða eða klippikort eða eingöngu miða á tónleikana. Mynd: LYST
Armband, bjórmiðar eða klippikort
Reynir segir mikilvægt að fólk átti sig á því að ekki þurfi allir að kaupa armband til að geta tekið þátt í hátíðinni. „Það má alveg koma bara í garðinn, fá sér eitthvað gott að borða, einn bjór eða gos og njóta stemningarinnar. Sumir stoppa allan daginn en aðrir koma bara í klukkutíma. Það er alveg jafn velkomið,“ segir Reynir en bjórmiðar og klippikort verða til sölu á staðnum. Armbönd er hægt að kaupa á netinu og einnig á staðnum.
Í ár verða 13 drykkjaframleiðendur á svæðinu sem gestir geta gengið á milli, sem er svipað og í fyrra og Reynir segir að ekki sé stefnt að því að stækka hátíðina mikið frekar, a.m.k. ekki það sem er í boði í Lystigarðinum, frekar þá að bæta við samstarfsaðilum víðar um bæinn. „Við viljum halda þessu í hæfilegri stærð. Markmiðið er ekki að fjölga brugghúsum endalaust heldur að skapa góða stemningu þar sem fólk hefur tíma til að njóta dagsins.“
Það er stór hópur sem bíður eftir þessari helgi á hverju ári og skipuleggur jafnvel vinahittinga í kringum hana. Það er akkúrat það sem við vonuðumst eftir.

Frá hátíðinni í fyrra. Nauðsynlegt er að gestir gangi vel um Lystigarðinn svo allt gangi upp, pissi í salernin í garðinum og virði blómabeð. Mynd: LYST
Matar- og menningarviðburður
Þegar Reynir er spurður að því hvað sé stærsta áskorunin við að halda þess hátíð segir hann að hún felist í því að útskýra fyrir fólki hvað bjórhátíð snúist raunverulega um. „Margir halda að þetta sé bara eitthvert fyllerí, en þannig er þetta alls ekki. Fólk er að smakka ólíka bjóra í litlum glösum, finna það sem því líkar best og njóta dagsins. Þetta er miklu meira matar- og menningarviðburður en margir gera sér grein fyrir.“ Að hans sögn hefur sá misskilningur minnkað með hverju árinu og sífellt fleiri heimamenn hafi tekið hátíðina upp á sína arma. „Það er stór hópur sem bíður eftir þessari helgi á hverju ári og skipuleggur jafnvel vinahittinga í kringum hana. Það er akkúrat það sem við vonuðumst eftir.“
Góð umgengni gesta nauðsynleg
Þá leggur Reynir áherslu á að hátíðin væri ekki möguleg nema með góðu samstarfi við starfsfólk Lystigarðs Akureyrar. „Við viljum sérstaklega þakka starfsfólki Lystigarðsins fyrir þeirra aðstoð. Við leggjum ríka áherslu á að garðurinn líti jafn vel út eftir hátíðina og áður en hún hefst.“
Hann hvetur gesti til að ganga vel um svæðið, nota salernin sem eru við garðinn og virða þær reglur sem gilda um afmarkað hátíðarsvæði. Samvinna þarf að ríkja og virðing fyrir garðinum til þess að hátíðin gangi upp. „Við eigum öll þennan garð saman og viljum að hann verði áfram lifandi vettvangur fyrir skemmtilega viðburði,“ segir Reynir sem hlakkar til að sjá sem flesta Akureyringa á hátíðinni um helgina. Spáin er líka góð, hlýtt veður og þurrt eins og spáin lítur út þegar þetta er skrifað. Þá er rétt að benda á að aldurstakmark á bjórhátíðina er 20 ár þ.e.a.s. til að kaupa armband og bjór, en 18 ára aldurstakmark er á kvöldtónleikana. Yngri gestir mega þó sækja tónleikana í fylgd með fullorðnum. Allar nánari upplýsingar er að finna inn á heimasíðunni lyst.is

Góð stemming var á hátíðinni í fyrra. Mynd: LYST