Fara í efni
Fréttir

Styrktartónleikar fyrir Úlfar Baldvin á morgun

Styrktartónleikar verða haldnir í Samkomuhúsinu á Akureyri annað kvöld, fyrir Úlfar Baldvin, sex ára Dalvíking sem fyrr á árinu greindist með æxli í höfði og er byrjaður í meðferð í Svíþjóð. Úlfar Baldvin og fjölskylda hans eiga fyrir höndum langt og strangt ferli og tónleikarnir eru haldnir til að leggja fjölskyldunni lið. Allur ágóði af tónleikunum rennur bent til fjölskyldunnar.
 
  • Tónleikar í Samkomuhúsinu hefjast kl. 20 annað kvöld, þriðjudagskvöld.
  • Miðasala fer fram á netfanginu u.b.best@gmail.com.
  • Miðaverð er 3.000 kr.
Einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn. Þeim sem ekki sjá sér fært að koma en vilja leggja söfnuninni lið er bent á reikningsnúmer þar sem frjáls framlög eru vel þegin.
 
  • Reikningsnúmer: 2200 - 15 - 081165
  • Kennitala: 040395-3269
Eftirtaldir listamenn koma fram á tónleikunum að því er segir í tilkynningunni:
 
  • Andrea Gylfa
  • Arnþór Þorsteinsson
  • Ágúst Brynjars
  • Drottningar
  • Hjalti Rúnar
  • Magni Ásgeirs
  • Níels Girerd
  • Sólveig Guðmunds
  • Svavar Knútur
  • Tinna Óðins
  • Urður Bergs
  • Villi Braga

Viðburðurinn á Facebook