Fara í efni
Mannlíf

Styrktarbingó fyrir Vonarbrú á sunnudag

Styrktarbingó fyrir almannaheillafélagið Vonarbrú verður haldið á morgun, sunnudaginn 1. mars kl. 14 í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Fjöldi veglegra vinninga verður í boði.

Í tilkynningu um viðburðinn segir að hægt verði að kaupa eitt bingóspjald á 1.500 krónur, þrjú spjöld á 3.500 krónur og fimm spjöld á 5.000 krónur. Meðal glæsilegra vinninga má nefna gistingu fyrir tvo með kvöldverði og morgunverði á Ytra Lóni á Langanesi og dagsferð til Húsavíkur sem innifelur ferð fyrir tvo í hvalaskoðun með Norðursiglingu og aðgang fyrir tvo í Sjóböðin. Heildarverðmæti vinninga hleypur á hundruðum þúsunda króna.

Vonarbrú er almannaheillafélag sem stofnað var á síðasta ári. Félagið leggur áherslu á að styðja við og bæta hag barnafjölskyldna á Gaza í Palestínu. Á liðnu ári styrkti félagið u.þ.b. 70 ungar barnafjölskyldur sem glíma við að halda sér á lífi og þrauka í kjölfar þess efnahagslega og félagslega hruns sem hefur átt sér stað meðal fólksins á Gaza.