Fara í efni
Fréttir

Stutt „nótt“ að degi til – MYNDBAND

Mynd: Hilmar Friðjónsson

Almyrkvi á sólu var sjáanlegur víða á vestanverðu landinu í dag, miðvikudag, en deildarmyrkvi átti að vera sjáanlegur annars staðar. Í Eyjafirði sást reyndar ekki til sólar því alskýjað var laust fyrir sex í kvöld, þegar myrkvinn náði hámarki, en upplifunin var engu að síður mögnuð. Í um það bil eina mínútu rökkvaði svo mjög að svartamyrkur var á svæðinu – a.m.k. nam myndavélin ástandið þannig. Engu líkara en skollin væri á niðdimm nótt, en síðan birti ótrúlega snögglega aftur.

  • Smellið á myndina til að sjá myndskeið Hilmars
  • Ríkissjónvarpið hefur verið með umfangsmikla umfjöllun um almyrkvann - smellið hér til að sjá