Fara í efni
Menning

Stórafmælistónleikar Karlakórs Eyjafjarðar

Karlakór Eyjafjarðar stendur fyrir tónlistarveislu í Hofi á morgun, laugardag, í tilefni 30 ára starfsafmælis kórsins. Stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson en auk kórsins stíga tveir gestasöngvarar á svið og þar verður einnig sjö manna hljómsveit.

Afmælistónleikana kallar kórinn Lífið er konsert. „Karlakór Eyjafjarðar hefur í þrjá áratugi verið mikilvægur hluti af tónlistar- og menningarlífi á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu,“ segir í kynningu á tónleikunum. „Á þeim tíma hefur kórinn komið víða fram, sungið við fjölmörg tækifæri og eignast stóran hóp dyggra áheyrenda. Afmælistónleikarnir eru því tilefni til að líta yfir farinn veg, fagna þeim áfanga sem náðst hefur og um leið horfa fram á veginn.“

Á tónleikunum verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem léttleiki í lagavali og flutningi verður í fyrirrúmi, eins og það er orðað.

Á efnisskránni verða lög sem fólk þekkir í flutningi ýmissa vinsælla norðlenska hljómsveita eins og Ingimars Eydal, Gauta, Skriðjökla, Greifanna og Póló og Bjarka svo nokkrar séu nefndar. Einnig verða flutt lög eftir Eirík Bóasson, Bjarna Hafþór Helgason og Óðin Valdimarsson ásamt sígildum kórlögum t.d. úr „Vesalingunum“. Allmörg þessara laga hefur Guðlaugur Viktorsson söngstjóri útsett sérstaklega fyrir kórinn.

„Með kórnum á sviðinu verða tveir öflugir gestasöngvarar, Magni Ásgeirsson og Snorri Snorrason. Þeir munu setja svip sinn á dagskrána og eiga eftir að skapa skemmtilega og eftirminnilega samveru með kórnum,“ segir í tilkynningu frá kórnum. „Meðleik annast sjö manna hljómsveit sem Daníel Þorsteinsson fer fyrir og tryggir tónleikunum kraftmikinn og fjölbreyttan hljóðheim. Kynnir verður hinn góðkunni Óskar Pétursson og mun hann leiða gesti í gegnum dagskrána á sinn einstaka og létta hátt.“


Í HNOTSKURN

  • Karlakór Eyjafjarðar – 30 ára afmælistónleikar
  • Hof, laugardag 24. október
  • Tónleikarnir hefjast kl. 16:00
  • Stjórnandi: Guðlaugur Viktorsson
  • Gestasöngvarar: Magni Ásgeirsson og Snorri Snorrason
  • Hljómsveit: 7 manna hljómsveit undir stjórn Daníels Þorsteinssonar
  • Kynnir: Óskar Pétursson
  • Miðaverð: 9.900 - 11.900 kr.
  • Miðasala: mak.is og tix.is