Stíf norðanátt, slydda og snjór í kortunum

Sumarið heldur áfram að koma á óvart. Ef til vill erum við orðin of góðu vön eftir hlýindaskeiðið um og upp úr miðjum maí, en hafi einhver haldið að vikan sem er að líða hafi verið óblíð og blaut er engu að síður von á verri dögum í næstu viku. Örlítið hefur borið á gráu í fjöllum stöku daga að undanförnu, en eftir helgina er von á stífri norðanátt og kólnandi veðri. Þá má búast við rigningu eða slyddu víða um land og snjókomu til fjalla.
Veðurstofan hvetur bændur og ferðafólk til að fylgjast vel með veðurspám og -viðvörunum í komandi viku. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings og veðurspá sem gerð var síðdegis í dag.
Veðrið um helgina verður þó þokkalegt, en snýst í norðanátt á mánudag. Þessar veðurhorfur vekja væntanlega ugg í hugum sauðfjárbænda sérstaklega vegna hættu sem bleyta, snjór og kuldi geta skapað fyrir nokkurra daga eða vikna gömul lömb og mjólkandi mæður þeirra.
Svona gæti Norðausturland litið út aðfararnótt þriðjudagsins 3. júní kl. 03:00. Skjáskot af vedur.is.
Veðurhorfurnar næstu daga, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands frá því í morgun sem gildir til hádegis fimmtudaginn 6. júní:
- Á sunnudag (sjómannadagurinn):
Vestlæg átt, 3-10 m/s og víða dálítil rigning, en lengst af þurrt á Ausutrlandi. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast á Suðausturlandi. - Á mánudag:
Norðan 8-15 m/s og lítilsháttar rigning víða um land, en þurrt að kalla suðvestanlands. Kólnandi veður. - Á þriðjudag:
Norðan 10-18 m/s og rigning eða slydda, hvassast austast, en bjart með köflum suðvestantil. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst. - Á miðvikudag:
Ákveðin norðvestanátt og víða rigning eða slydda, en bjart með köflum sunnan heiða. Fremur svalt í veðri. - Á fimmtudag:
Norðvestanátt og rigning eða slydda með köflum á norðanverðu landinu, en stöku skúrir sunnantil. Áfram svalt í veðri.