Fara í efni
Menning

Sót keppir í Wacken í dag – hægt að kjósa

Sót eftir sigur í íslensku undankeppninni fyrir Wacken Metal Battle. Hljómsveitin stígur á svið í Þýskalandi í dag.

Íslenska metalsveitin Sót, sem stofnuð var á Akureyri, keppir í dag í Wacken Metal Battle, keppni sem er hluti af tónlistarhátíðinni Wacken Open Air í Þýskalandi, einni stærstu metalhátíð heims – uppselt er á hátíðina en um 85.000 miðar voru í boði. 

Wacken Metal Battle er stærsta metalkeppni heims, að því er segir í tilkynningu, forkeppni fór fram í meira en 100 löndum en að þessu sinni stíga hljómsveitir frá 31 landi á svið í keppninni í Þýskalandi. 

Sót fer á svið klukkan 17:35 að íslenskum tíma í dag á Headbangers sviðinu, þar sem margar af stærstu hljómsveitum metalsögunnar hófu ferilinn, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Hljómsveitin Sót varð til á Akureyri þegar stofnendurnir stunduðu nám í MA og VMA. Hana skipa þeir Arnar Smári Sigurðsson, Aron Freyr Ívarsson, Daníel Hrafn Ingvarsson, Ísleifur Jónsson og Ívar Leó Hauksson.

Hægt er að fylgjast með keppninni í beinu streymi og kjósa Sót í áhorfendakosningu keppninnar.

Kosning: https://www.metal-battle.com/voting/

Beint streymi: https://www.youtube.com/live/SQw1ZqhyHDQ

Sót á Instagram: @thesotofficial 

Sót á TikTok: @thesotofficial 

Sót á Spotify: https://open.spotify.com/artist/6Nc1Qeqwnbi0odTnFc0Lua

Sót á sviði í íslensku undankeppninni fyrir Wacken Metal Battle.