Sólstöður Guðrúnar í menningarhúsinu Hofi
Um síðustu helgi var opnuð sýningin Sólstöður í menningarhúsinu Hofi. Á sýningunni er að finna verk eftir myndlistarkonuna Guðrúnu Sigurðardóttur.
Verkin á sýningunni eru textílverk, olíumálverk og teikningar. Efniviðurinn er ullargarn, móher/silkigarn, hörstrigi, silki, vatnslitapappír, olíulitir, hörband, naglar og rammar smíðaðir úr ösp af Sigurði J. Sigurbjörnssyni. Verkin tengjast að formi og litum þannig að hekluð verk sem urðu til fyrst höfðu áhrif á tilurð síðari verka. Eftir hekluðu verki var sniðið form úr striga. Formið sem klippt var úr striganum birtist svo í öðru verki og þannig mætti rekja áfram.
Á vefnum mak.is segir þetta um verkin: „Til að hekla í hring þarf að auka út með jöfnu millibili sex sinnum í umferð. Ef útaukning er alltaf á sama stað þá myndast sexhyrningur. Komið getur fyrir að aukningin verði rífleg og til að hringur eða sexhyrningur leggist slétt á flöt getur þurft að hekla umferð án þess að auka út. Aðlaga. Lykkju fyrir lykkju byggist formið upp. Með útúrdúrum og afbökun verður það lífrænt. Grundvallarreglur í heiðri hafðar en tilviljanir nýttar til að lita og lífga. Kerfisbundið. Aftur og aftur, endalaust, hring eftir hring.“
Sýningin stendur til 22. febrúar.