Fara í efni
Mannlíf

Sólstöðuhátíð haldin í Grímsey um helgina

Ljósmynd: Gyða Henningsdóttir

Sólstöðuhátíð verður haldin í Grímsey um helgina. Dagskrá þessarar árlegu hátíðar einkennist af góðri samveru og fögnuði nú þegar birtu nýtur allan sólarhringinn, eins og segir í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

„Þjóðhátíðardeginum verður fagnað með ungum sem öldnum að hætti Grímseyinga og um helgina er boðið upp á siglingu í kringum eyjuna, göngu yfir heimskautsbaug á sumarsólstöðum með söng og gítarleik, dorgveiðikeppni, sjósund og bryggjuför, að ógleymdu hinu margrómaða sjávarréttakvöldi kvenfélagsins Baugs. Fólk syngur saman við varðeld og loks verður slegið upp dansleik í félagsheimilinu Múla.“

Nánar hér um hátíðina