Fara í efni
Menning

Sólför sendir frá sér sitt annað lag

Akureyrska rokksveitin Sólför. Mynd: Daníel Starrason.

Akureyrska rokksveitin Sólför sendi nýverið frá sér sitt annað lag Resurrection sem er mætt á allar helstu streymisveitur. Á næstu vikum er von á þremur nýjum lögum til viðbótar frá sveitinni og útgáfa á vínyl er fyrirhuguð í haust. Stefnt er að fyrstu tónleikunum þann 11. apríl.

Að sögn hljómsveitarinnar er nýja lagið þriggja mínútna orkusprengja sem gert er til að hlusta á í botni og skilaboðin eru skýr: Rokkið er risið á ný. „Rokkið er búið að vera í svolitlum dvala síðastliðin ár hérna heima á Íslandi. Það eru auðvitað rosalega flott bönd að gera góða hluti, eins og Vintage Caravan, Kaleo og fleiri, en áherslan hefur mikið verið á hip-hoppi á autotune rappi,“ segir Ivan Mendez, söngvari sveitarinnar. „En nú eru lítil bönd að poppa upp allstaðar í bænum, rokk, pönk, alternative og allskonar snilld. Ég tek þessu fagnandi, sérstaklega því að sjá alvöru hljóðfæri á sviði aftur. Við erum bara að reyna að kynda undir eldinum og svæla burt gamla og þreytta anda. Ég held að fólk sé farið að þrá eitthvað hrátt og óheflað,“ bætir hann við.

Tónleikar og vínylplata

Fyrsta lag Sólfara leit dagsins ljós í lok janúar sl. og þrjú ný lög til viðbótar eru væntanlega á næstu vikum. Sveitin stefnir á plötuútgáfu í haust og að það verði gert á gamla mátann – alvöru vínylplata. „Þessi tónlist er bara gerð fyrir vínyl. Þaðan kemur innblásturinn af sándinu. Svo er líka miklu skemmtilegra að halda á verkinu í höndunum, það gefur því meira gildi,“ segir Sigfús Jónsson, bassaleikari og upptökustjóri.

Sveitin stefnir á sína fyrstu tónleika, ásamt hljómsveitunum Show Guilt og LEÐUR, á Leyni barnum við Hafnarstræti þann 11. apríl nk.

Nýja lagið með Sólförum á Spotify: