Sóley datt í lukkupottinn í leik Ormsson og HTH

Sóley Úlfarsdóttir datt í lukkupottinn og hlaut aðalvinninginn í gjafaleik sem Ormsson og HTH efndu til í tilefni opnunar nýrrar verslunar á Norðurtorgi á Akureyri nýverið. Sóley hlaut „glæsilega eldhúsinnréttingu frá HTH að verðmæti allt að 1.500.000 króna. Að sögn Sóleyjar kemur vinningurinn sér einstaklega vel þar sem hún stendur einmitt í framkvæmdum um þessar mundir,“ segir í tilkynningu frá Ormsson og HTH.
„Viðtökurnar hafa verið frábærar og hefur fjöldi gesta lagt leið sína í nýju verslunina á undanförnum vikum,“ segir í tilkynningunni. „Í tilefni opnunarinnar var efnt til skemmtilegs gjafaleikjar þar sem þátttakendur áttu þess kost að vinna glæsilega vinninga. Leikurinn vakti mikla lukku meðal heimamanna og tóku hátt í þrjú þúsund manns þátt enda til mikils að vinna.“
„Við viljum þakka öllum þeim sem tóku þátt í leiknum og óskum vinningshöfum innilega til hamingju,“ segir Hjalti Jónsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Ormsson og HTH í tilkynningunni.
Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur Ágúst Svavarsson ráðgjafi hjá HTH, Sóley Úlfarsdóttir sem hlaut aðalvinninginn í gjafaleiknum, og Matthías Ólafsson verslunarstjóri á Akureyri.