Fara í efni
Íþróttir

Sögulegt mark Erin fyrir Þór/KA gegn Fram

Erin Flurey, bandaríski framherjinn hjá Þór/KA, fagnar eftir að hún skoraði undir lok leiksins í gær. Markið var sögulegt, það þúsundasta sem sameiginlegt lið Þórs og KA skorar í deildakeppni Íslandsmótsins. Mynd: Ármann Hinrik

Erin Flurey, bandaríski framherjinn hjá Þór/KA, skoraði sögulegt mark þegar hún gulltryggði liðinu sigurinn á Fram, 2-0, í Bestu deild kvenna á Þórsvellinum í gærkvöld.

Þetta var þúsundasta markið sem sameiginlegt lið Þórs og KA skorar í deildakeppni Íslandsmótsins, tveimur efstu deildunum, frá því Akureyrarfélögin tvö sendu sameiginlegt lið til keppni í fyrsta skipti árið 1993, þá undir merkjum ÍBA. Leikið var í nafni ÍBA til 1998 og um tíma hét liðið Þór/KA/KS þegar félögin voru í samstarfi við Siglfirðinga.

Markið var það 20. sem Þór/KA skorar í Bestu deildinni í ár og það var ekki bara mikilvægt vegna þess að með því var sigurinn í höfn, eða vegna þess að þetta var þúsundasta markið – heldur gerði það gæfumuninn um að lyfta Þór/KA upp fyrir Þrótt á markatölu og í sjöunda sæti deildarinnar.

Erin skoraði þarna sitt fimmta mark í deildinni í ár og er markahæst á tímabilinu hjá Þór/KA, en Margrét Árnadóttir kemur næst henni með fjögur mörk.

Markið stóð heldur betur vel undir því að vera númer 1.000 í röðinni því það var skorað eftir sannarlega glæsilega skyndisókn liðsins undir lok leiksins þar sem Erin fékk góða sendingu frá Margréti og lék varnarmenn Fram grátt áður en hún renndi boltanum í netið.

Sameiginlegt lið Þórs og KA hefur skorað 819 af þessum þúsund mörkum í efstu deild og 181 mark hefur liðið skorað í 1. deild.

Sandra María Jessen, fyrir miðri mynd, fagnar einu eftirminnilegasta marki sínu fyrir Þór/KA, fyrra marki liðsins í 2:0 sigri á FH á Þórsvellinum, í lokaumferð Íslandsmótsins 28. september 2017. Sigurinn tryggði liðinu Íslandsmeistaratitilinn. Sandra María er lang markahæst í sögu liðsins með 121 mark, Stephany Mayor, til vinstri, gerði á sínum tíma 57 mörk og Hulda Ósk Jónsdóttir, til hægri, hefur gert 24 mörk fyrir Þór/KA. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sandra María Jessen hefur skorað 12,1 prósent af þessum þúsund mörkum því hún hefur gert 121 mark fyrir liðið, öll í efstu deild og Rakel Hönnudóttir er næst með 10,5 prósent, en þessar eru markahæstar:

  • 121 – Sandra María Jessen
  • 105 – Rakel Hönnudóttir
  • 61 – Mateja Zver
  • 57 – Stephany Mayor
  • 51 – Þorbjörg Jóhannsdóttir
  • 36 – Arna Sif Ásgrímsdóttir
  • 33 – Guðrún Soffía Viðarsdóttir
  • 29 – Karen María Sigurgeirsdóttir
  • 29 – Margrét Árnadóttir
  • 24 – Hulda Ósk Jónsdóttir

Rakel Hönnudóttir, til vinstri, gerði 105 mörk fyrir Þór/KA á árum áður og Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrir miðri mynd, hefur gert 36 mörk fyrir liðið. Hér eru þær í leik gegn GRV á Þórsvellinum 2009. Leiknum lauk með 7:0 sigri Þórs/KA og báðar skoruðu, Rakel tvö mörk og Arna Sif eitt. Mynd: Skapti Hallgrímsson

  • Umfjöllun akureyri.net um leikinn í gær:

Fjórði heimasigur Þórs/KA í röð