Fara í efni
Fréttir

Söfnun hafin vegna Garðsins hans Gústa

Garðurinn hans Gústa verður glæsilegt mannvirki og vel við hæfi að það verði á lóð Glerárskóla, steinsnar frá íþróttahúsinu þar sem Ágúst þjálfaði mest.

Garðurinn hans Gústa er verkefni sem nokkrir vinir Ágústar H. Guðmundssonar heitins standa að. Markmiðið er að reisa veglegan körfuboltavöll við Glerárskóla og afhenda Akureyrarbæ í nafni Ágústar, þegar aðstaðan verður fullbúin.

Ágúst, sem lést í upphafi árs langt fyrir aldur fram, markaði djúp spor í sögu körfuboltaíþróttarinnar á Akureyri. Hann lék með Þór á yngri árum, þjálfaði síðan hjá félaginu til fjölda ára og er sigursælasti þjálfari þess frá upphafi. Ágúst starfaði mest við þjálfaun í íþróttahúsi Glerárskóla og því fannst vinum hans við hæfi að völlurinn yrði við þann skóla.

„Ágúst var harður Boston Celtics aðdáandi og því lá það beinast við að körfuboltavöllurinn fengi nafnið Garðurinn,“ segir í tilkynningu frá hópnum, en heimavöllur Boston Celtics hefur langi gengið undir þessu nafni; Boston Garden var ein frægasta keppnishöll í sögu bandarísku NBA deildarinnar en núverandi höll félagsins kallst TD Garden.

„Eins og gefur að skilja er verkefnið ærið og kostar skildinginn. Við höfum því ákveðið að fara af stað með söfnun og er markmiðið að safna fyrir helmingi kostnaðarins en Akureyrarbær mun leggja til hinn helminginn,“ segir í tilkynningunni.

Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0302-26-000562. Kennitala: 420321-0900.