Fara í efni
Fréttir

Sniðgangan verður í dag – hefst kl. 14 við HA

Frá Sniðgöngunni í september 2025. Mynd: Þorgeir Baldursson.

Sniðgangan 2026 fer fram á Akureyri í dag, laugardaginn 12. september, og hefst klukkan 14 við Háskólann á Akureyri. Gengið verður að Ráðhústorgi þar sem dagskrá verður við göngulok.

Einkunnarorð göngunnar í ár eru Sniðgöngum öll. Á Ráðhústorgi verður meðal annars ræða frá fulltrúa Stúdentafélags Háskólans á Akureyri, Svavar Knútur flytur tónlist og Oddný Björg Rafnsdóttir les kveðjur frá Gaza. Þá mun Hamza Abukamleh leiða þátttakendur í dabke-hópdansi.

Félagið Ísland-Palestína og góðgerðarfélagið Vonarbrú verða með söluborð á torginu.

Sniðgangan er skipulögð í tengslum við stuðning við Palestínu og hvatningu til sniðgöngu. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segja þeir markmiðið meðal annars vera að vekja athygli á stöðunni á Gaza og Vesturbakkanum og þrýsta á íslensk stjórnvöld um frekari aðgerðir gagnvart Ísrael.

Gangan fer fram samtímis á Akureyri og höfuðborgarsvæðinu og er þetta í þriðja sinn sem hún er haldin á báðum stöðum.

Aðstandendur hvetja þátttakendur til að mæta með fána, klúta og skilti. Viðburðurinn er samstarfsverkefni BDS Íslands, Félagsins Ísland-Palestínu, Vonarbrúar, Dýrsins - félags um réttinn til að mótmæla, Háskólafólks fyrir Palestínu og Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.

Nánari upplýsingar um Sniðgönguna og skráningu má finna á vef hennar.