Fara í efni
Mannlíf

Smakk frá 12 löndum á matarmenningarhátíð

Verkalýðsfélagið Eining-Iðja bryddar upp á því að bjóða félagsmönnum sínum á áhugaverða samkomu í dag, fimmtudag, 16. apríl: matarmenningarhátíð sem haldin verður í Hofi. Þar munu félagsmenn frá 12 löndum bjóða upp á smakk á mat, hver frá sínu heimalandi þannig að margt mismunandi verður í boði. Hátíðin hefst klukkan 17.00 og stendur til 19.00.