GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ!

Hæ hó jibbí-jei og allt það! Þjóðhátíðardagur Íslendinga er í dag, og á Akureyri hefst hátíðardagskrá kl 13, og stendur til kl 17 í Lystigarðinum, á MA-túninu og í næsta nágrenni þess. Blómabíllinn leggur af stað frá Naustaskóla kl. 11.00, keyrir í gegnum íbúðahverfin, niður Listagilið, eftir Strandgötunni og víðar þar sem ómur berst frá palli bílsins með þjóðhátíðartónlist. Akstursleið blómabílsins má kynna sér HÉR!
Þau sem vilja hefja fögnuðinn á skrúðgöngu, mæta við Gamla húsmæðraskólann við Þórunnarstræti kl. 12.30. Skátafélagið Klakkur og Lúðrasveit Akureyrar leiða förina að venju, en gengið verður suður í Lystigarðinn þar sem hátíðardagskráin fer fram. Veðurspáin gæti verið betri, en hún gæti líka verið verri. Von er á 8-10 stiga hita, skýjum og mögulega einhverri rigningu.
Hátíðardagskrá í Lystigarðinum
13.00-14.00
- Fánahylling
- Lúðrasveit Akureyrar undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur
- Bænagjörð og blessun: Eydís Ösp Eyþórsdóttir, djákni í Glerárkirkju
- Kór Glerárkirkju undir stjórn Valmars Väljaots
- Fjallkonan, Kolfinna Líndal Arnarsdóttir nýstúdent frá VMA
- Ávarp bæjarstjóra: Ásthildur Sturludóttir
Fjölskylduskemmtun í Lystigarðinum
14.00-17.00
- 14.00 Eik Haralds & Guðjón
- 14.20 Dansatriði frá Steps Dancecenter
- 14.30 Tinna & Daníel Andri
- 15.00 Drinni & The Dangerous Thoughts
- 15.30 Dansatriði frá DSA Listdansskóla Akureyrar
- 15.40 Hvolpasveitin
- 16.20 Jónína Björt & Ívar Helga
Afþreying á MA-túni og víðar
14.00-17.00
- Hoppukastalar
- Andlitsmálning kl. 14.00-16.00
- Frisbígolf með Frisbígolffélagi Akureyrar í Stefánslundi norðan við MA
- Götukörfubolti með Körfuknattleiksdeild Þórs við íþróttahús MA
- Hópleikir fyrir börn á öllum aldri á túninu vestan við heimavist MA & VMA
- Sölutjald frá Skátunum
- Skátatívolí
- Matarvagnar
- Boðið verður upp á siglingu með Húna II kl. 16.30. Siglt er frá Fiskihöfninni norðan við ÚA, beint neðan við Hagkaup. Siglingin er 45 mínútna löng. Bætt verður við annarri siglingu kl. 17.15 ef þörf verður á.
Blómabíllinn vekur jafnan mikla athygli hvar sem hann kemur. Hann ekur um bæinn í dag; leggur af stað 11:00 frá Naustaskóla og keyrir um hverfi bæjarins. Mynd: Skapti Hallgrímsson