Fara í efni
Mannlíf

Skemmtileg sýning í Skógarlundi

Einn listmunanna á sýningunni. Ljósmynd: Jón Óskar Ísleifsson.

Árleg vorsýning Skógarlundar hófst í morgun klukkan 10.00 og stendur til 15.30. Þá er opið hús og til sýnis og sölu allir listmunir sem fólkið í Skógarlundi hefur unnið síðastliðið ár og lengur.

Skógarlundur er miðstöð virkni og hæfingar fyrir fatlaða að Skógarlundi 1, rautt, áberandi hús.

Meðal muna verða leir-, gler- og trémunir ásamt vegglistaverkum og eldpappakubbum sem unnir eru úr tættum pappír. Í boði verða vöfflur og kaffi gegn vægu gjaldi ásamt tónlist, sem spiluð klukkan 10.45 og sá leikur verður endurtekinn klukkan 14.30.

Ljósmyndarinn Jón Óskar Ísleifsson, góðvinur Akureyri.net, leit við á sýningunni í morgun og sendi nokkrar myndir.