Fara í efni
Fréttir

Skapa tækifæri fyrir fólk með geðraskanir

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, og Pálína Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Grófarinnar, við undirritun samningsins fyrr í dag. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Stefnt er að því að efla Grófina geðrækt á Akureyri sem geðræktarmiðstöð og ennfremur að auka tengsl og samvinnu Grófarinnar við þá aðila innan bæjarfélagsins sem vinna með fólki sem glímir við geðraskanir.

Þetta er markmið samstarfssamnings Akureyrarbæjar og Grófarinnar sem undirritaður var í dag, um þjónustu Grófarinnar í sveitarfélaginu. Greint er frá samningnum á vef bæjarins.

Grófin veitir fólki með geðraskanir, 18 ára og eldra, samastað til að vinna í bataferli sínu með aukinni virkni, jafningjastuðningi, hópastarfi og stuðningssamtölum við ráðgjafa. Markmiðið er að skapa tækifæri fyrir fólk með geðraskanir til að vinna í sínum bata á eigin forsendum og án tímamarka. Við undirritun samningsins sagði Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, meðal annars að öllum ætti að vera ljóst mikilvægi þess að halda utan um þann viðkvæma hóp sem á við geðrænan vanda að etja og að það væri Grófin vissulega að gera með miklum sóma.

Haldnir verða samstarfsfundir tvisvar á ári, í janúar og september, milli starfsmanna Grófarinnar og félagsþjónustu Akureyrarbæjar, þar sem farið verður yfir sameiginlega þjónustuþega og hvernig þörfum þeirra verði best mætt bæði á einstaklingsgrunni og/eða með hópastarfi eða námskeiðum. Félagsþjónusta sveitarfélagsins aðstoðar notendur við að tengjast Grófinni til að njóta endurhæfingar á þessu sviði.

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, bæjarfulltrúi VG, sendi Akureyri.net grein um málið sem birtist í dag. Smellið hér til að lesa hana.