Fara í efni
Fréttir

Sjúkrahúsið: Mygla á rannsóknarstofunni

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Mygla fannst á rann­sókn­ar­stofu Sjúkra­húss­ins á Ak­ur­eyri í síðustu viku og færa þarf starf­sem­ina tíma­bundið í annað rými innan stofnunarinnar. Greint er frá þessu á mbl.is í kvöld.

Hildigunn­ur Svavars­dótt­ir, for­stjóri Sjúkra­húss­ins á Ak­ur­eyri, segir við mbl.is að í vet­ur hafi komið upp grun­ur um myglu, fyrstu rannsóknir hefðu bent til þess að hún væri afmörkuð en í síðustu viku komið í ljós að um­fangið væri mun meira en gert var ráð fyr­ir í upp­hafi.

Frétt mbl.is: Mygla á rannsóknarstofu sjúkrahússins