Fara í efni
Menning

Sjómannadagur, Embla, Zimoun og ljósmyndir

Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.

Tónleikar

  • Patti Smith Quartet – Menningarhúsinu Hofi, þriðjudaginn 2. júní kl. 20:00. Patti Smith er að nálgast áttrætt og er einn áhrifamesti listamaður sinnar kynslóðar; söngkona, lagasmiður, ljóðskáld og myndlistarkona.
  • Kvennakórinn Embla – Glerárkirkju, sunnudaginn 7. júní kl. 17:00. Kvennakórinn Embla, Margrét Árnadóttir sópran og Erla Dóra Vogler mezzosópran, ásamt hljómsveit. Stjórnandi er Roar Kvam. Á efnisskránni eru verk fyrir kór, tvo einsöngvara og hljómsveit. Frumflutningur á Magnificat eftir Roar Kvam, ásamt Stabat Mater eftir Kim André Arnesen. Miðasala við innganginn.
  • Ari Bald og Hermenn hugans – Græna hattinum, fimmtudaginn 4. júní kl. 21:00. Frumsamin tónlist með kántríívafi.
  • Ívar Klausen – Græna hattinum, föstudaginn 5. júní kl. 21:00. Efnisskráin í léttari kantinum, í anda sálarskotinnar popprokk tónlistar af fyrstu sólóplötu Ívars sem kom út í apríl.
  • Todmobile – Græna hattinum, sunnudaginn 6. júní kl. 21:00. Öll bestu lögin flutt, með áherslu á fjórar fyrstu breiðskífur sveitarinnar.

Kvennakórinn Embla heldur tónleika í Glerárkirkju ásamt einsöngvurum og hljómsveit.

 

Viðburðir

Diddú og Örn Árnason verða með skemmtidagskrá í Hofi í tilefni sjómannadagsins.

 

Listsýningar

Svissneski listamaðurinn Zimoun opnar sýningu í Listasafninu á fimmtudagskvöld.


Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.