Fara í efni
Fréttir

Sjö sóttu um embætti forstjóra SAk

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Sjö umsóknir bárust til heilbrigðisráðuneytisins um embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri en umsóknarfrestur rann út þann 12. júlí síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Meðal umsækjenda eru Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Sjúkrahúsinu á Akureyri og Jón Magnús Kristjánsson, sem nýverið sagði upp starfi yfirlæknis bráðadeildar Landspítalans.

Umsækjendur eru eftirfarandi, í stafrófsröð:

  • Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur
  • Guðmundur Magnússon, framkvæmdarstjóri
  • Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Jón Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri
  • Kristinn v Blöndal, ráðgjafi
  • Linda Rut Benediktsdóttir, sviðsstjóri
  • Suren Kanayan, læknir

Þriggja manna hæfnisnefnd mun nú meta hæfni umsækjanda, segir í tilkyningu ráðuneytisins. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri til 5 ára frá 1. september 2021.