Fara í efni
Mannlíf

Sjálfsrækt – dagleg umhyggja og iðkun

„Það er fallegt og jákvætt að leggja rækt við eitthvað, að stuðla að vexti og að hlúa að því sem skiptir okkur máli og það gerum við á margvíslegan hátt. Við leggjum rækt við börnin okkar, ræktum garðinn okkar og hlúum að því sem okkur þykir mikilvægt.“ 
 
Þetta segir Guðrún Arngrímsdóttir í heilsupistli sem akureyri.net birtir í dag. Pistillinn ber yfirskriftina Hvað er sjálfsrækt? og er mjög áhugaverður eins og aðrir í pistlaröð þeirra Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur.
 
Guðrún segir að til að geta hlúð vel að öðrum þurfi fólk að leggja rækt við sig sjálft. „Það koma ólík atriði upp í hugann hjá fólki þegar við talað er um sjálfsrækt. Ég gæti trúað að hjá flestum komi fyrst upp hreyfing, hollur matur og svefn. Þetta eru grunnstoðir góðrar heilsu sem hafa verið það lengi og verða það áfram. En skilningur okkar á sjálfsrækt heldur áfram að þróast og dýpka eftir því sem þekking okkar eykst.“
 

Pistill Guðrúnar: Hvað er sjálfsrækt?