Fara í efni
Fréttir

Sjálfsafgreiðslustöð N1 við Mývatn lokað

Sjálfsafgreiðslustöð N1 við Mývatn verður lokað á morgun, þriðjudaginn 3. nóvember, og eldsneytisafgreiðslu á núverandi stað hætt. N1 vill áfram þjónusta svæðið og hefur um töluvert skeið leitað að nýrri lóð til að koma í veg fyrir þjónustuskerðingu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Samningur fyrirtækisins um afnot á lóðinni rennur út um áramótin og ekki hefur tekist að framlengja hann. N1 mun nú að loka stöðinni og fjarlægja allan búnað á svæðinu. Nauðsynlegt er að hefja þá vinnu áður en vetur gengur í garð. Gengið verður frá svæðinu í samræmi við kröfur sveitarfélagsins og viðeigandi eftirlitsaðila,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að N1 hafi óskað eftir nýrri staðsetningu fyrir stöð á svæðinu og fyrirtækið leitar nú lausna í samvinnu við sveitarfélagið og landeigendur. Félagið á í viðræðum um hentugar lóðir sem gerir því kleift að halda áfram þjónustu við íbúa, fyrirtæki og ferðafólk á svæðinu.

„Eftir lokun er viðskiptavinum bent á stöð N1 á Laugum eða Húsavík, þar sem eldsneytisafgreiðsla er opin allan sólarhringinn. N1 harmar þau óþægindi sem lokunin veldur og þakkar viðskiptavinum fyrir viðskiptin og traustið á liðnum árum.“