Fara í efni
Fréttir

Sjálfsafgreiðsluposar við Vaðlaheiðargöng

Sjálfsafgreiðsluposar hafa verið settir upp beggja vegna Vaðlaheiðarganga. Áður var eingöngu hægt að greiða gjaldið í göngin í gegnum vefsíðuna veggjald.is.
 
Á Facebook síðu Vaðlaheiðarganga segir að verðið sé hið sama og ef greitt er á netinu. Að nota sjálfsafgreiðsluposana getur hins vegar verið  þægilegri kostur fyrir t.d. ferðamenn.  Greiðsluferlið er einfalt, bílnúmer er slegið inn og greiðslukort eða símtæki er lagt að greiðsluposanum. Þá er rétt að benda á að ef fólk keyrir í gegnum göngin án þess að greiða veggjaldið innan 24 klst. frá því að ferð var farin þá er reikningur sendur í heimabanka hjá eiganda eða umráðaaðila ökutækis.