Fara í efni
Fréttir

Sjáðu hvernig nýja flugstöðin verður

Svona verður flugstöðin séð frá bílastæðinu. Viðbyggingin vinstra megin, núverandi flugstöð og flugturninn til hægri.

Stefnt er að því að viðbygging við flugstöðina á Akureyri verði tekin í notkun eftir um það tvö og hálft ár, um vor eða sumar 2023. Um er að ræða 1100 fermetra stálgrindarhús.

Í viðbyggingunni, sem verður við norðurenda núverandi flugstöðvar en nær til vesturs, verður brottfarar- og komusalur fyrir millilandaflug, fríhöfn og veitingasala. Innritunarsalur fyrir bæði innanlands- og millilandaflug verður í núverandi komusal og innanlandsfarþegar fara um suðurhluta núverandi byggingar.

Gert er ráð fyrir því að eftir stækkun flugstöðvarinnar verði hægt að afgreiða 180 sæta millilandavél á innan við klukkutíma samhliða 70 sæta innanlandsvél. Við hönnun er gert ráð fyrir því að auðvelt verði að stækka bygginguna síðar meir og breyta nýtingu einstakra svæða.

Það eru Arkis og Mannvit sem sjá um hönnun viðbyggingarinnar.

Horft af flugplaninu; núverandi flugstöð til vinstri, viðbyggingin er sú brúna hægra megin.