SinfoniaNord með stór alþjóðleg verkefni
Tölvuleikir, kvikmyndir, sjónvarpsþættir, ópera og popp framundan hjá hjá SinfoniaNord
Nóg verður um að vera hjá SinfoniaNord – Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á næstunni þegar hljómsveitin tekur þátt í upptökum á tónlist fyrir alþjóðlegar kvikmyndir, sjónvarpsþætti, tölvuleik og önnur tónlistarverkefni. Þar á meðal eru upptökur fyrir fjórðu þáttaröð vinsælu sjónvarpsþáttanna Silo, nýja teiknimynd um lóuungann Lóa og samstarf við bandarísku tónskáldin Blake Neely og Dustin O’Halloran. Þá eru einnig fram undan upptökur fyrir japanskt tölvuleikjafyrirtæki. Samhliða þessum verkefnum hefur hljómsveitin notið mikillar velgengni á tónleikasviðinu, þar sem uppseldir tónleikar í Hofi, Hörpu og Þjóðleikhúsinu setja svip sinn á starfsárið.
Á morgun, föstudag, tekur hljómsveitin upp tónlist fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo, einnar vinsælustu vísindaskáldsagnaseríu Apple TV. Akureyringurinn Atli Örvarsson semur tónlist í þættina sem fyrr en þeir skarta sænsku leikkonunni Rebecca Ferguson í aðalhlutverki. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda víða um heim og standa nú íslenskum áhorfendum til boða eftir að streymisveitan Apple TV varð aðgengileg hérlendis.
Um helgina, bæði laugardag og sunnudag, tekur við annað alþjóðlegt kvikmyndaverkefni þegar SinfoniaNord hljóðritar tónlist fyrir Ploey – You Never Fly Alone II, framhald íslensku teiknimyndarinnar um lóuungann Lóa. Um er að ræða hollenskt og íslenskt samstarfsverkefni sem heldur áfram sögu litla fuglsins sem rataði á hvíta tjaldið árið 2018.

Atli Örvarsson við upptökur með SinfoniaNord í Hofi fyrir nokkrum árum. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Verðlaunuð kvikmyndatónskáld
Atli Örvarsson hefur unnið til ýmissa verðlauna fyrir tónlist í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og dagana 11.–13. nóvember er fyrirhugað að annað verðlaunað tónskáld, Bandaríkjamaðurinn Blake Neely, taki upp tónlist með hljómsveitinni í Hallgrímskirkju í Reykjavík.
„Neely er einn af þekktari höfundum kvikmynda- og sjónvarpstónlistar í Hollywood,“ segir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar. „Hann samdi meðal annars tónlistina við stríðsmyndina Greyhound, með Tom Hanks í aðalhlutverki, og hefur komið að tónlist vinsælla sjónvarpsþátta á borð við The Flash, Arrow og Supergirl. Hann hefur hlotið Emmy-verðlaun og fjölmargar tilnefningar fyrir verk sín.“
Síðar í nóvember er stefnt að frekara samstarfi við bandaríska tónskáldið og píanóleikarann Dustin O’Halloran. Hann er meðal annars þekktur fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Lion, sem færði honum Óskarstilnefningu ásamt Volker Bertelmann, og Emmy-verðlaun fyrir tónlist hans í sjónvarpsþáttunum Transparent.

Tónleikar Friðriks Dórs og SinfoniaNord í Hofi í síðasta mánuði. Mynd: Þorgeir Baldursson
SinfoniaNord hefur áður unnið með Dustin, meðal annars að tónlist fyrir kvikmyndina The Old Guard og upptökum fyrir hið virta útgáfufyrirtæki Deutsche Grammophon. Nýjar upptökur með honum eru fyrirhugaðar 28. og 29. nóvember.
Fleiri verkefni eru þegar í undirbúningi og meðal annars er stefnt að upptökum fyrir japanskt tölvuleikjafyrirtæki eftir áramót. Þannig heldur hljómsveitin áfram að hasla sér völl á alþjóðlegum markaði fyrir kvikmynda-, sjónvarps- og tölvuleikjatónlist.
Á toppnum með Friðriki Dór
Samhliða þessum alþjóðlegu verkefnum hefur SinfoniaNord notið mikillar velgengni á íslensku tónleikasviði, segir Þorvaldur Bjarni. Í byrjun október kom hljómsveitin fram ásamt Friðriki Dór á tvennum uppseldum tónleikum í Menningarhúsinu Hofi. Einir voru upphaflega fyrirhugaðir en spurn eftir miðum var svo mikil að öðrum tónleikum var bætt við. Friðrik Dór og hljómsveitin endurtóku leikinn í Hörpu í Reykjavík í lok mánaðarins og þar var einnig uppselt.
Vert er að geta þess að samstarfið við Friðrik Dór skilaði sér út fyrir tónleikasalinn, en lagið „Hvað er það versta sem gæti gerst?“, sem Þorvaldur og Friðrik unnu saman ásamt SinfoniaNord, hefur notið mikilla vinsælda í útvarpi og náði meðal annars efsta sæti vinsældalista Rásar 2. Það hefur jafnframt verið mest spilaða lagið í íslensku útvarpi undanfarið.

Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson við upptöku í stúdíói Menningarfélags Akureyrar í Hofi í sumar. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Þá tók SinfoniaNord þátt í framleiðslu frumraunar nýstofnaðrar þjóðaróperu í Hofi í síðasta mánuði. „Óperuverkefnið hefur sömuleiðis vakið mikla athygli og mun hljómsveitin einnig taka þátt í sýningu Óperunnar í Þjóðleikhúsinu um miðjan nóvember, þar sem þegar er uppselt,“ segir Þorvaldur Bjarni.
„Þessi fjölbreytta starfsemi endurspeglar stöðu SinfoniaNord sem hljómsveitar sem starfar jöfnum höndum á íslenska tónleikasviðinu og í alþjóðlegri kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu. Á sama tíma og þúsundir tónleikagesta njóta flutnings hljómsveitarinnar hér heima hljómar tónlist hennar í verkefnum sem ná til áhorfenda víða um heim. Nánar tiltekið úr heimi í heim,“ segir hann og vísar til tónleikasýningar með þessu nafni sem er á dagskrá Menningarfélagsins eftir áramót. Sveitin flytur þar ásamt fleirum mörg af þekktustu lögum íslenskra barnasöngleikja – sem eiga það sameiginlegt að vera samin af Þorvaldi Bjarna!