Menning
Síðdegisdjass á Móa í Hofi á Listasumri
25.06.2025 kl. 10:00

Ljósmynd af Hofi: Auðunn Níelsson
Boðið verður upp á síðdegisdjass á Móa Bistro í Hofi á Listasumri. Í frétt á vef Menningarfélagsins segir að nú sé undirbúningur fyrir næsta menningarár á fullu, og þó að lítið sé á döfinni annað en planleggingar, þá taki MAk þátt í Listasumri. Miðvikudjass verður fjóra miðvikudaga í röð frá kl 16-17 á Móa Bistró. Djass-réttir og happy hour verða á Móa meðan á tónleikunum stendur.
Fyrstu tónleikarnir verða í dag, miðvikudaginn 25. júní, þegar Jón Þorsteinn Reynisson kemur með harmonikuna og töfrar fram létta, djassaða tóna. Næst mæta gítarleikarinn Kristján Edelstein og bassaleikarinn Stefán Ingólfsson. Hér má lesa meira um tónleikaröðina Miðvikudjass.
- 25. júní - Jón Þorsteinn Reynisson, Harmonikkudjass
- 2. júlí - Krissi og Stebbi
- 9. júlí - Eik & Guðjón
- 16. júlí - Baby bop
Samsett mynd. www.mak.is