Fara í efni
Fréttir

Sérsveitin kölluð til vegna líkamsárásar

Lögreglan lokaði svæðinu í grennd við umrætt hús við Gránufélagsgötu. Rétt er að taka fram að húsið sést ekki á myndinni. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Upp úr klukkan eitt í nótt lauk umfangsmikilli lögregluaðgerð við íbúð í Gránufélagsgötu á Akureyri en bæði lögreglan og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku þátt í aðgerðunum. Einn maður var fluttur á sjúkrahús og annar handtekinn. Sá særði er ekki í lífshættu.

RUV greindi fyrst frá málinu í gærkvöld og þar kom fram að eigi færri en fjórir lögreglubílar og einn sjúkrabíll hefðu verið á vettvangi en aðgerðirnar hófust um kl. 22 í gærkvöld.

Að því er fram kom í frétt Vísis í morgun var um líkamsárás að ræða og var einn handtekinn í aðgerðunum. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á sjúkrahús en er ekki í lífshættu. Yfirheyrslur yfir þeim sem komu við sögu fara fram í dag en lögreglan vildi ekki veita nánari upplýsingar að svo stöddu.