Fara í efni
Fréttir

Samtök atvinnulífsins með fund í Hofi

Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, ræðir við félagsmenn á vinnufundi í Reykjanesbæ í gær. Mynd: BIG

Samtök atvinnulífsins (SA) hefja nýtt starfsár með áherslu á útflutningsgreinar og efna til hringferðar um landið í því tilefni. Samtökin halda vinnufund í menningarhúsinu Hofi á Akureyri á morgun, þann 5. júní, þar sem forsvarsfólk fyrirtækja og aðrir áhugasamir eru boðnir velkomnir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SA.

„Á fundinum verður fjallað um helstu áskoranir fyrirtækja, hvernig stjórnvöld geti skapað aukin tækifæri og leiðir til að auka útflutningstekjur Íslands. Fundargestir fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í samtali um framtíð útflutningsgreina og lífsgæða í landinu,“ segir í tilkynningunni.

Húsið verður opnað kl. 11:30 með hádegisverði fyrir gesti og hefst fundurinn sjálfur kl. 12.

Hægt er að skrá sig á heimasíðu samtakanna.