Fara í efni
Fréttir

Samningur í höfn, kynntur á föstudag

Oddvitar framboðanna sem náð hafa samning um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Akureyrar; Sunna Hlín Jóhannesdóttir Framsókn, Berglind Ósk Guðmundsdóttir Sjálfstæðisflokki og Óðinn Svan Óðinsson L-lista. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Sjálfstæðisflokkur, L-listi og Framsókn hafa náð saman um myndun meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar næstu fjögur ár skv. heimildum akureyri.net. Sömu heimildir herma að þetta verði tilkynnt í dag og að málefnasamningur verði svo kynntur á föstudaginn.

Hvert þessara framboða fékk 2 bæjarfulltrúa kjörna á laugardaginn en 11 sitja í bæjarstjórn Akureyrar.

Sjálfstæðisflokkur (2) og L-listi (3) voru í meirihlutasamstarfi með Miðflokki (1) á nýliðnu kjörtímabili.

Fréttin hefur verið uppfærð. Nánar síðar